skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
Virðulegi forseti. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja á þskj. 426. Þetta er mál nr. 361. Með frumvarpinu er kveðið á um ný heildarlög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sem innleiða meginhluta tilskipunar 2014/59/ESB, um endurreisn og skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, svokallaða BRRD-tilskipun.
Auk nýrra heildarlaga um skilameðferð er í frumvarpinu kveðið á um afmarkaðar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki og einnig á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Frumvarpið er annar en jafnframt langstærsti áfangi innleiðingar á BRRD-tilskipuninni en hluti hennar hefur þegar verið innleiddur með lögum nr. 54/2018, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki. Í frumvarpinu er kveðið á um reglur sem varða skilameðferð og hvernig megi fyrirbyggja, undirbúa og framkvæma slíkt ferli. Lagt er til að framkvæmd reglnanna verði að mestu í höndum einingar innan Seðlabanka Íslands sem nefnist skilavald og er sá áskilnaður gerður að skilavaldið verði aðgreint frá annarri starfsemi í skipulagi Seðlabankans.
Í frumvarpinu er einnig kveðið á um stofnun fjármögnunarfyrirkomulags sem nefnist skilasjóður en þeim sjóði er ætlað að fjármagna aðgerðir vegna skilameðferðar ef slíkt ferli reynist nauðsynlegt. Með frumvarpinu er lagt til að svokallaður skilasjóður verði sérstök deild í Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta. Þá er lagt til að hafist verði handa við uppbyggingu sjóðsins með tilfærslu á fjármunum um tveggja ára skeið úr innstæðudeild Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Til framtíðar er svo áformað að skilasjóðurinn verði byggður upp með gjaldtöku sem grundvallast á Evrópureglum en stærð sjóðsins skal vera 1% af tryggðum innstæðum fyrir lok ársins 2027. Með frumvarpinu er lagt til að færa skuli 1,2 milljarða kr. árið 2020 og sömu fjárhæð ári síðar úr innstæðudeild Tryggingarsjóðsins til skilasjóðsins.
BRRD-tilskipunin er umfangsmikil og inniheldur bæði flóknar efnisreglur og áskilnað um nýja framkvæmdaraðila, þ.e. skilavaldið og skilasjóðinn. Ég hef talið mikilvægt að við útfærsluna hér á landi verði nýjum framkvæmdaraðilum komið fyrir með hagkvæmum hætti, m.a. þannig að sem minnstur tilkostnaður hljótist af bæði fyrir hið opinbera og fyrirtæki á fjármálamarkaði.
Mun ég nú víkja að helstu efnisatriðum frumvarpsins.
Í fyrsta lagi eru í því ákvæði um skilaáætlun sem skilavaldið skal útbúa fyrir lánastofnanir og eftir atvikum stærri verðbréfafyrirtæki. Skilaáætlun skal tilgreina þær aðgerðir sem hægt er að grípa til við skilameðferð fyrirtækis og útfæra hvernig aðgerðunum verður hrint í framkvæmd.
Í öðru lagi er ákvæði um mat á skilabærni fyrirtækis. Skilavaldið skal þannig meta hvort fyrirtæki sé skilabært, en með því er átt við hvort unnt sé að taka það til skila- eða slitameðferðar án þess að það hafi verulega neikvæð áhrif á fjármálakerfi og fjármálastöðugleika. Þessu mati er þannig ætlað að tryggja að við skilameðferð geti áframhald orðið á nauðsynlegri starfsemi viðkomandi fyrirtækis.
Í þriðja lagi er um að ræða nýja kröfu um samsetningu eigin fjár sem nefnist lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar. Kröfunni er ætlað að koma í veg fyrir að lánastofnanir, og ef við á verðbréfafyrirtæki, hagi uppbyggingu skuldbindinga sinna þannig að þær séu undanþegnar eftirgjöf. Fyrirtækin sem undir reglurnar falla þurfa því að hafa til staðar nægt eigið fé og skuldbindingar svo hægt sé að bregðast við tapi þeirra og endurreisa eiginfjárgrunn við skilameðferð svo að fyrirtækin geti áfram uppfyllt skilyrði fyrir starfsleyfi.
Í fjórða lagi ber að nefna úrræði um niðurfærslu og umbreytingu fjármagnsgerninga. Tilgangur þessa úrræðis er að bregðast við tapi fyrirtækis og endurfjármagna það. Um er að ræða vægara úrræði en þau sem formleg skilameðferð kveður á um og getur því m.a. verið gripið til úrræðisins til að forða fyrirtæki frá skilameðferð. Forsenda þess að úrræðinu verði beitt er ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að slíkt sé nauðsynlegt til að fyrirtæki verði rekstrarhæft.
Í fimmta lagi eru ákvæði í frumvarpinu um virðismat á eignum og skuldbindingum. Það er fjallað um þrenns konar virðismat í viðeigandi kafla frumvarpsins sem ýmist er skylt eða heimilt að framkvæma. Virðismat gegnir margþættu hlutverki, m.a. við mat á því hvort skilyrði séu uppfyllt til að taka fyrirtæki til skilameðferðar, hvert skuli vera umfang niðurfærslu eða umbreytingu skuldbindinga, ásamt því að ákvarða hvernig eignir og skuldbindingar verði framseldar og hvaða endurgjald skuli greiða fyrir framsalið.
Í sjötta lagi ber svo að nefna ákvörðunina um skilameðferð, en fyrirtæki verður ekki tekið til skilameðferðar nema þrjú skilyrði séu uppfyllt. Í fyrsta lagi þarf fyrirtæki að vera á fallanda fæti, í öðru lagi er það skilyrði að ekki sé ástæða til að ætla að aðkoma einkaaðila eða opinberar aðgerðir komi í veg fyrir fall fyrirtækisins innan ásættanlegs tíma og í þriðja lagi þarf skilameðferð að vera nauðsynleg vegna almannahagmuna. Ákvörðun um skilameðferð er tekin af skilavaldi Seðlabankans en er háð fyrirframsamþykki fjármála- og efnahagsráðherra.
Í sjöunda lagi vek ég athygli á meginefni frumvarpsins sem eru ákvæði um skilaúrræði og skilaheimildir. Hin svokölluðu skilaúrræði eru fjögur, í fyrsta lagi sala rekstrar, í öðru lagi framsal til brúarstofnunar, í þriðja lagi uppskipting eigna og í fjórða lagi eftirgjöf. Þessum úrræðum er hægt að beita við skilameðferð fyrirtækis, annaðhvort í sameiningu eða sjálfstætt. Skilaheimildirnar eru svo margvíslegar og er þeim ætlað að tryggja skilvirka skilameðferð og framkvæmd á skilaúrræðunum.
Síðasta efnisatriðið sem ég vil nefna varðandi skilameðferðina er ákvæði um svokölluð opinber fjármálastöðgunarúrræði. Þetta sérstaka heiti vísar til þess að úrræðunum er ætlað að tryggja stöðugleika á fjármálamarkaði og hagsmuni almennings. Með úrræðunum er annars vegar kveðið á um að ráðherra geti fyrir hönd ríkisins, við sérstakar og óvenjulegar aðstæður, lagt fyrirtæki til eigið fé í skiptum fyrir hlutabréf eða önnur skírteini. Hins vegar getur ríkið við sömu aðstæður tekið fyrirtæki tímabundið undir sín yfirráð með því að framselja eignarhluti í því til sín. Eignarhald ríkisins getur þá verið beint eða óbeint í gegnum félag eða félög sem eru í eigu þess. Vert er þó að nefna að grundvallarmarkmið frumvarpsins er að lágmarka hættu á að veita þurfi framlög úr ríkissjóði. Hin svokölluðu opinberu fjármálastöðgunarúrræði eru því neyðarráðstöfun sem aðeins á að grípa til þegar önnur úrræði frumvarpsins duga ekki til. Úrræðunum eru sett ströng skilyrði og þykir rétt að skýrt komi fram að heimilt er að beita þeim við ákveðnar aðstæður en slíkt er aldrei skylt.
Auk þeirra efnisatriða sem ég hef nú rakið er að finna í frumvarpinu ýmsar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki vegna tengsla þeirra laga við ákvæði frumvarpsins.
Að lokum vil ég nefna að í frumvarpinu er kveðið á um afmarkaðar breytingar á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Þær breytingar byggjast ekki með beinum hætti á efni BRRD-tilskipunarinnar en eru nauðsynlegar vegna innbyrðis tengsla hennar við tilskipun um innstæðutryggingar. Á meðal breytinga eru nýjar skilgreiningar á hugtökunum tryggingarhæf innstæða og tryggð innstæða sem hafa umtalsverða þýðingu þar sem innstæðueigendur tryggðra innstæðna njóta frekari verndar samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Þessar nýju skilgreiningar breyta einnig gjaldstofni iðgjalda í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
Í frumvarpinu er svo loks kveðið á um breytingu á tryggingavernd innstæðna. Er lagt til að tryggingaverndin miðist framvegis við jafnvirði 100.000 evra í íslenskum krónum sem eru nú um 13,8 millj. kr. Miðað er við að verndin takmarkist við þessa upphæð hjá hverjum einstaklingi hjá hverju fjármálafyrirtæki. Samkvæmt gildandi lögum er ekkert hámark á tryggingavernd innstæða en lágmarkstrygging er fjárhæð að jafnvirði 20.887 evra í íslenskum krónum sem er nú tæpar 2,9 millj. kr.
Virðulegi forseti. Í frumvarpinu er kveðið á um nýja heildarumgjörð um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtæki og mælir því fyrir um fjölda breytinga sem miða að því að varðveita fjármálastöðugleika og lágmarka neikvæðar afleiðingar fjármálaáfalla með hagsmuni almennings að leiðarljósi.
Þetta frumvarp er yfirgripsmikið en þrátt fyrir umfangið eru heimildir þess um margt sambærilegar þeim heimildum sem Fjármálaeftirlitinu voru faldar með setningu neyðarlaganna haustið 2008. Þá eru ýmis úrræði og aðgerðir frumvarpsins að mörgu leyti sambærilegar þeim aðgerðum sem gripið var til á grundvelli neyðarlaganna í kjölfar þeirra miklu erfiðleika sem sköpuðust hér á landi við fjármálaáfallið. Mörg efnisatriði frumvarpsins eru því okkur Íslendingum vel kunn enda er þarna að finna ýmsar aðgerðir sem á sínum tíma var gripið til hér á landi með góðum árangri við endurreisn bankakerfisins.
Að lokum tel ég rétt að minnast á það að BRRD-tilskipunin var tekin upp í EES-samninginn 9. febrúar 2018 og mun hún taka gildi á Evrópska efnahagssvæðinu á næstu mánuðum. Efni þess frumvarps sem ég mæli hér fyrir fer langleiðina með að ljúka innleiðingu tilskipunarinnar. Verði frumvarpið samþykkt sem lög frá Alþingi stendur einungis eftir að innleiða afmörkuð ákvæði tilskipunarinnar sem varða skilasjóðinn og gjaldtöku vegna fjármögnunar hans.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að aflokinni þessari umræðu og svo til 2. umr. í þinginu.