störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég er á svipuðum slóðum og hv. þm. Þorsteinn Víglundsson. Ég heyri líka þær alvarlegu fréttir sem berast okkur núna um sjúkraþjálfara og samskipti þeirra við Sjúkratryggingar Íslands. Ég ætla að tala um tvennt, en tek fyrst undir hvert orð sem hv. þm. Þorsteinn Víglundsson sagði á undan mér. Ég ætla að bæta því við að það sorglega í stöðunni er nákvæmlega það að nú þarf sjúklingur eða einstaklingur sem leitar aðstoðar sjúkraþjálfara að borga reikninginn 100% á staðnum og fara sjálfur til Sjúkratrygginga Íslands til að fá endurgreitt. Það eru ansi margir úti í samfélaginu sem hafa hreinlega ekki efni á því, það er alveg á hreinu. Þeir munu sennilega frekar sleppa því að fara til sjúkraþjálfara. Fyrir utan það benda fulltrúar frá Félagi sjúkraþjálfara á að eldri borgarar muni sannarlega ekki ríða feitum hesti frá þessu og fái enga þjónustu inn á heimili sín.
Ég ætla líka að taka aðeins við boltanum af ágætum þingflokksformanni mínum og félaga í Flokki fólksins, Guðmundi Inga Kristinssyni, sem nefndi áðan að gefnu tilefni að verið væri að rugla saman epli og appelsínum. Við í Flokki fólksins gengum fram með dómsmál fyrir hönd eldri borgara. Við unnum það dómsmál og ríkið þarf að greiða 5.400 milljónir þess vegna, vegna ólögmætra skerðinga. Það eina sem vakti fyrir okkur var að benda á ófagleg, óvönduð vinnubrögð. Frumvarpið sem um ræðir fór í gengum þrjár umræður í þinginu og var í rauninni látið kyrrt liggja. Þetta var lögbrot og það skiptir engu máli hvort það snertir milljarðamæring eða einhvern sem hefur ekki nema 5.000 kr. rétt út úr lífeyrissjóði, ríkið var að brjóta lög og það var það eina sem við vorum að ganga á undan með. Við vonumst svo sannarlega til þess að þetta verði víti til varnaðar og að þetta löggjafarþing muni einhvern tímann læra svo rækilega af mistökunum að við vöndum okkur betur við löggjöfina sem við setjum og ætlumst til að borgarinn fylgi.