150. löggjafarþing — 30. fundur,  12. nóv. 2019.

störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. 12. júní 2018 skipaði forsætisráðherra framtíðarnefnd um áskoranir og tækifæri vegna tæknibreytinga. Sú nefnd hefur nú skilað af sér, rétt fyrir helgi, fyrstu skýrslu sinni sem fjallar um þróun samfélags til næstu 15–20 ára, með áherslu á atvinnu-, umhverfis-, byggða- og lýðfræðiþætti og áhrif þeirra á tekju- og útgjaldaþróun ríkisins. Til þessa hafa opinberir aðilar að mjög takmörkuðu leyti reynt að greina með skipulegum hætti líklega þróun til lengri tíma en slík greining er nauðsynleg til að skapa betri forsendur til að marka stefnu í mikilvægum málum. Einnig er slík greining nauðsynleg til að treysta betur samhengi ákvarðana til skemmri tíma við markmiðssetningu og horfur til lengri tíma. Með góðri greiningu er til að mynda hægt að meta áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á lykilatvinnuvegi og tækifæri til uppbyggingar og það má spá fyrir um hvaða menntun og hæfileika og þekkingu þarf til að tryggja áframhaldandi velsæld samfélagsins í breyttu umhverfi. Allt þetta helst auðvitað í hendur.

Í skýrslunni sem kom út á föstudaginn er farið yfir fjöldamörg atriði á breiðum grunni, byggt á spurningum til sérfræðinga og almennings og svörum þeirra ásamt athugun á fræðunum. Það er verið að horfa á mjög stutt tímabil, 2030–2040, en vænta má að í reynd muni niðurstöður könnunarinnar lýsa betur áframhaldandi ferli sem við munum sjá raungerast smám saman yfir lengri tíma.

Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að spá fyrir um framtíðina með mikilli vissu en ef það eru örlög okkar að hafa rangt fyrir okkur er alla vega hægt að hafa rangt fyrir sér á eins gagnlegan hátt og hægt er. Ég vil endilega hvetja þingmenn og aðra til að kynna sér þessa stuttu skýrslu. Hún er mjög skemmtileg og ekki síst vegna þess sem Richard Buckminster Fuller sagði á sínum tíma, að við eigum að vera arkitektar framtíðarinnar en ekki fórnarlömb hennar.