störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fyrir helgi kom umboðsmaður Alþingis á sameiginlegan fund fjögurra þingnefnda til að kynna fyrir okkur fyrstu heimsóknarskýrslu sína vegna svokallaðs OPCAT-eftirlits. OPCAT-eftirlit byggist á valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bókun sem segir fyrir um sjálfstæðan eftirlitsaðila í aðildarríkjum samningsins. Sá gerir úttekt á stöðum þar sem fólk er svipt frelsi sínu til að sporna gegn hættu á pyndingum og annarri vanvirðandi meðferð eða refsingu. Fyrsta heimsókn umboðsmanns Alþingis í því eftirliti var á spítalann Klepp en þar tók hann út réttargeðdeild, öryggisgeðdeild og sérstaka endurhæfingardeild. Skýrslan er umfangsmikil og vel unnin en í henni má finna ábendingar um ýmsa misbresti á lögum sem sú sem hér stendur hefur bent á í þessum ræðustól í nokkurn tíma. Í skýrslunni kemur fram að engin lagaheimild sé til fyrir beitingu þvingana gagnvart þeim sem dæmdir hafa verið til þess að vistast gegn vilja sínum á réttargeðdeild. Þar kemur einnig fram að mun skýrari lagaheimildir vanti til að beita vistmenn á öryggisgeðdeild og endurhæfingardeild þeim þvingunum sem þar eru notaðar til þess að ýmist þvinga lyfjagjöf eða tryggja öryggi á deildinni.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög alvarleg staða og skýrt brot á mannréttindum þeirra sem vistaðir eru á þessum stofnunum. Við eigum öll sjálfsákvörðunarrétt yfir eigin líkama. Við eigum öll rétt á friðhelgi einkalífs. Réttarríkið fyrirskipar að ekki megi ganga á þann rétt af hálfu hins opinbera nema með heimild í lögum, en hún er ekki til staðar. Löggjafinn hefur engu um þetta skeytt í áratugi þrátt fyrir endurtekin tilmæli Evrópunefndar um varnir gegn pyndingum sem hefur bent á óskýrar og ónógar lagaheimildir fyrir beitingu þvingana frá árinu 1994.
Herra forseti. Skýrsla umboðsmanns sýnir svart á hvítu að grundvallarmannréttindi fólks með geðrænan vanda hafa verið hunsuð í áraraðir. Það er þó von í þeim málaflokki því á síðasta vori samþykkti þetta þing að skipa sérstaka nefnd til að endurskoða þessi ólög. (Forseti hringir.) Það er vel því að nú er mál að linni.