störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar að nýta þetta tækifæri til að vekja athygli á máli sem ég verð að viðurkenna að hefur pirrað mig nokkuð síðan ég kom inn á Alþingi fyrir réttum tveimur árum. Í janúar 2012 bárust fréttir af því að risastórt grjót væri komið fyrir utan Alþingishúsið. Síðan bárust fréttir af því að þar væri á ferð Svarta keilan, sem svo var kölluð, minnisvarði um borgaralega óhlýðni eftir listamanninn Santiago Sierra. Sá ágæti listamaður kallar sig andófslistamann en væntanlega er það ekki lögverndað starfsheiti.
Öll skilaboð frá Alþingi, alveg frá upphafi þessa gjörnings, hafa verið þau að verkið ætti ekki heima þarna. Reykjavíkurborg hefur auðvitað sent Alþingi, og þá yfirstjórn þess, hefðbundin skilaboð um að hafa sig hæga. Mig langar að vísa í orð þáverandi 1. varaforseta, Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, sem sagði í maí 2012 að það væri stílbrot að setja þetta niður á Austurvelli. Það var einróma samþykkt í forsætisnefnd að verkið styngi í stúf við heildarmynd Austurvallar og er það haft eftir Ragnheiði Ríkharðsdóttur.
Reykjavíkurborg tók sig til, flutti svörtu keiluna um nokkra metra og nú stendur hún fyrir framan Skála Alþingis. Mig langar að vísa því til forseta Alþingis og forsætisnefndar að hlutast til um að taka upp samtal við Reykjavíkurborg þar sem markmiðið og niðurstaðan verði sú að grjóthnullungurinn, þessi svokallaða svarta keila, verði fluttur af Austurvelli. Þetta svokallaða listaverk á ekkert heima hér. Fyrir mig get ég sagt: Ég vil þetta burt og fyrsti tíminn er bestur hvað það varðar. Það væri við hæfi í aðdraganda jóla — þar sem Listasafn Reykjavíkur hefur metið verkið á 25 milljónir fyrir nokkru — að semja við listamanninn um að selja það og veita ágóðanum til Mæðrastyrksnefndar. Hann hefur örugglega ekki á móti því.