150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

umsvif Samherja og veiðigjöld.

[10:50]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina en hvet hv. þingmenn til að upplýsa, ef við höfum færi á því, hvaðan í ósköpunum þær fullyrðingar koma að ef íslensk fyrirtæki, sama hvert þeirra í hlut á, eru í útrás í þessum heimshluta byggi þau allt saman á því að íslensk fyrirtæki þurfi að múta heimamönnum. (Gripið fram í.) Það er fullyrðing (Gripið fram í.) sem ég get ekki stutt en undrast að heyra það því að ég veit til þess að íslenskir einstaklingar sem eru í viðskiptum reyna að stunda þau eftir bestu getu hvar sem er í veröldinni. Nóg um það.

Hvernig stendur á því að við erum með svona stórt fyrirtæki? Ég kann engar skýringar á því. Fyrirtæki eru ýmist stór eða lítil, það veltur fyrst og fremst á þeim sem stofna til þeirra og því starfsfólki sem þau fá til liðs við sig ef um er að ræða stærri fyrirtæki en einyrkja. Í þessu tilfelli eru mörg þúsund fjölskyldur á Íslandi sem eiga töluvert undir því og hafa lagt sig fram um að byggja upp þetta öfluga fyrirtæki. Þannig háttar til og ég kann engar einhlítar skýringar á því. Þetta er ekki bara verk eins manns eða hundrað manna, þetta er samfélagslegt verkefni í rauninni sem hefur byggst upp með þessum hætti á grunni fjölda fólks. Við lokum ekkert augunum fyrir því, ekki neinn sem er í þessum sal, hvaða áhrif ákvarðanir Alþingis hafa á byggð í landinu, rekstur fyrirtækja o.s.frv. Við erum oft að skiptast á skoðunum um það.

Ég ætla að nefna við hv. þingmann að það eru ekkert öll sveitarfélög í landinu í rúst. Það hefur fjölgað á landsbyggðinni þrátt fyrir að við mörg hver hér inni vildum sjá meiri fjölgun þar en raunin hefur orðið. Þegar hv. þingmaður fullyrðir hér að breytingar á veiðigjaldi sem gerðar voru hafi leitt til þess að þau lækki — (IngS: Skila.) skili minna en áður, ætla ég bara að benda hv. þingmanni á það sem hefur komið ítrekað fram í umræðunni, að ef lögum hefði ekki verið breytt hefði lækkunin á veiðigjöldunum orðið 5 milljarðar í stað 2 milljarða.