fjárlög 2020.
Hæstv. forseti. Við erum hér við lok 2. umr. fjárlaga og mér finnst umræðan hafa verið gagnleg. Hún hefur meira en oft áður náð yfir mjög margt í umfangi fjárlaganna, málefnasviðum og málaflokkum. Mér finnst margar prýðisræður hafa verið haldnar hér og það var gott skipulag á því innan flokkanna að ná utan um einstök málefnasvið og málaflokka og hvaða áhrif þau útgjöld hafa á samfélagið og byggðir. Ég vil hrósa stjórnarandstöðunni fyrir þetta. Það er jafnframt mikilvægt að koma fram með tillögur og lausnir þótt ég sé auðvitað ekki sammála þeim öllum.
Það er ekki beinlínis rauður þráður í gagnrýni stjórnarandstöðuflokkanna, t.d. hvort ætti að auka eða draga úr ríkisútgjöldum, lækka eða hækka skatta. Öll erum við þó sammála um eitt og það fannst mér rauður þráður í þessari umræðu og það er vel, að það er mikilvægt öllum stundum, virðulegi forseti, þegar kemur að ríkisfjármálum að nýta fjármuni með skilvirkum og skynsamlegum hætti og meta hverju það skilar. Þess vegna er þessi umræða nauðsynleg og þess vegna fannst mér hún mjög gagnleg. Ég leitast við að draga gagnrýnina úr umræðunni með uppbyggilegum hætti að því leyti. Þess vegna er þessi vinna þingsins, nefndarinnar, samtölin við umsagnaraðila, stofnanir í samfélaginu, atvinnulífið, mjög mikilvæg og mikilvægur hluti af fjárlagaferlinu og þeirri stefnumótun sem birtist í fjárlögunum hverju sinni.
Það staðfestist og kristallaðist vel í umræðunni að hæstv. ríkisstjórn hefur á kjörtímabilinu aukið mjög útgjöld. Við erum að horfa til mikillar raunaukningar ríkisútgjalda á kjörtímabilinu og til fjárfestinga í helstu innviðum. Þegar við tölum um eðli útgjalda og skatta eru áhrif þeirra ákvarðana sem stjórnvöld taka mikilvæg sem hluti af réttum viðbrögðum við hagsveiflu, sem framlag til vinnumarkaðar, atvinnulífsins og heimilanna. Við sjáum það sannarlega birtast í þessum fjárlögum í fjárfestingum, í framlagi til lífskjarasamnings vinnumarkaðarins, með markvissum skattalækkunum og breytingum á tekjuskatti einstaklinga sem miða sérstaklega að því að auka ráðstöfunartekjur tekjulægri hópa. Það eru tímamót að skattleysismörk munu framvegis taka mið af verðlagi og framleiðniaukningu vinnuaflsins og njóta þá hagvaxtar þegar fram í sækir.
Þróun útgjalda málefnasviðanna 35 í ríkisfjármálunum hefur meiri hlutinn tekið saman í eitt yfirlit þar sem sést svart á hvítu að verið er að sinna uppbyggingu helstu innviða eins og lagt var upp með í stjórnarsáttmálanum. Lög um opinber fjármál hafa breytt verklagi og það kom vel fram í þessari umræðu. Nú er þetta eitt samhangandi stefnumótunarferli og þunginn er að færast mikið á vinnu við ríkisfjármálaáætlun að vori sem eykur festuna og agann í gegnum alla stjórnsýsluna og dregur fram mikilvægi áætlunargerðar á fyrri stigum. Þær ákvarðanir og breytingar sem við vinnum með hér koma ekkert síður fram í þeirri vinnu og frávikin í heild sinni eru ekki mikil þrátt fyrir þær breytingar sem óhjákvæmilega verður að gera. Hér tökum við sumar ákvarðanir sem leiða til breytinga, enda erum við að fást við lifandi og kraftmikið efnahagsumhverfi.
Hv. þm. Smári McCarthy sagði í athyglisverðri ræðu að ríkisbókhaldið væri ekki eins og hvert annað heimilisbókhald. Það er athyglisverð nálgun, virðulegi forseti, og má velta því fyrir sér og rökstyðja með þeim hætti að nei, það er ekki eins og hvert annað heimilisbókhald, heldur er það bókhald allra heimilanna í landinu. Það er svo merkilegt að það má jafnframt færa rök fyrir því að þegar við samþykkjum útgjaldaheimildir og ákveðum álögur og skatta kunni heildarútkoma með öfugum formerkjum að vera skynsamleg til þess að veita viðspyrnu og auka verðmætasköpun, styðja við atvinnulífið og heimilin í landinu. Þess vegna eru þessi fjárlög og ríkisfjármálastefnan einmitt hönnuð til að veita viðspyrnu í efnahagslífinu og mæta hjaðnandi hagvexti. Fjölmargir aðilar hafa einnig staðfest að ríkisfjármálastefnan vinnur nú í takt við peningamálastefnu og vinnumarkað.
Ég vil í lokin, (Forseti hringir.) virðulegur forseti, þakka öllum þeim sem tóku þátt í umræðunni. Hún var málefnaleg, hún var uppbyggileg og er afar mikilvægur þáttur í fjárlagaferlinu. (Forseti hringir.) Hv. fjárlaganefnd þakka ég sérstaklega góða samvinnu.