150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[14:33]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Við þurfum að styrkja þær stofnanir sem annast rannsókn efnahags- og skattalagabrota. Hér leggjum við í Samfylkingunni til 60 millj. kr. til skattrannsóknarstjóra til að koma í veg fyrir réttarspjöll og óskum liðsinnis þingheims við þessa tillögu.