150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[14:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Þetta kallast að minnka báknið, stroka út kirkjujarðasamkomulagið eins og það leggur sig, henda því út um gluggann. Það er andstætt stjórnarskrá og lögum, þetta viðbótarsamkomulag. Við skiljum þó eftir biskupsstofu, biskup og nokkra starfsmenn til að uppfylla ákvæði stjórnarskrár. Það er upp á 266 milljónir að mig minnir. En þetta er skref sem Alþingi verður að fara að taka og besta tækifærið er einmitt núna. Það verður aldrei dýrara fyrir okkur að klára þetta mál núna og fara með það í gegnum dómstóla og þess háttar upp á að skera úr um hvort það séu einhver ábyrgð þarna á bak við eða ekki, aldrei. Það verður alltaf dýrara að halda áfram að greiða þetta út í hið óendanlega, alltaf. Þannig að endilega hættið þessu rugli.