150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[14:55]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Við í þingflokki Samfylkingarinnar gerum tillögu um breytingu á þessum lið í frumvarpi til fjárlaga. Umræðan um uppbyggingu á sviði samgangna hefur verið ofarlega á baugi í öllu samfélaginu og það er sama hvar drepið er niður fæti, þörfin er hrópandi. Einn kimi má ekki verða út undan. Það eru almenningssamgöngur, hvort heldur sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Það er auðvitað í samræmi við þá sýn sem við höfum til framtíðar, að efla almenningssamgöngur, og hér þarf að bæta um betur og við skulum sýna það strax í verki. Við leggjum til að bætt verði við 1 milljarði í þennan þátt fjárlaganna.