fjárlög 2020.
Virðulegi forseti. Hér er hvorki meira né minna undir heldur en Landspítali – háskólasjúkrahús, öll sérfræðiþjónusta sem ekki telst almenn sjúkrahúsþjónusta. Það eru gríðarlegar aðhaldskröfur á Landspítalanum núna. Þeir eru að fara að skera niður hjá sér þjónustuna um 3,5 milljarða kr. Ef það er einhvers staðar sem við eigum að verja fé og forgangsraða er það í heilsu. Á þessum stað hljótum við að geta sammælst um að við verðum að halda utan um sjúkrahúsið okkar. Hér erum við að tala um 4 milljarða kr. til þess að reyna að koma í veg fyrir þann niðurskurð sem þegar hefur verið boðaður í aðhaldi.