150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[16:00]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur að hér sé um mjög jákvætt skref að ræða. Það er algerlega í samræmi við stjórnarsáttmálann að hækka þakið á fæðingarorlofinu og jafnframt lengja það. Þetta eru 1,3 milljarðar og ég tel að við getum öll verið sammála um að greiða atkvæði með þessari tillögu.