150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[16:01]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Þetta er einnig mjög góð tillaga frá meiri hluta fjárlaganefndar. Í henni felst að 30 milljónir verði settar í ART-verkefnið sem er mjög mikilvægt verkefni til að koma til móts við börn sem eiga við vanda að glíma. Þetta er 30 millj. kr. tímabundið framlag og einnig er um að ræða 18 millj. kr. tímabundið framlag til Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Ég geri ráð fyrir því að þingheimur sé sammála um þessa tillögu og greiði atkvæði með henni.