150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[16:11]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Hér er verið að bæta 300 millj. kr. við liðinn Þróunarsamvinna. Við ræddum um það þegar atkvæði voru greidd um fjármálaáætlun í vor að þessir peningar kæmu hér aftur inn við meðferð fjárlaga fyrir árið 2020. Það er verið að gera það hérna og þar með er verið að vinna að því sem segir í stjórnarsáttmálanum um að framlög til þróunarsamvinnu fari hækkandi sem hlutfall af landsframleiðslu.