150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[16:19]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hérna er nýr liður: Að selja varðskipin Ægi og Tý og kaupa eða leigja hagkvæmari skip í staðinn. Ef það gerist erum við í enn meiri mínus. Það er tvímælalaust dýrara þegar allt kemur til alls. Þannig að við erum að samþykkja hér heimild sem þarf síðan að koma með frumvarp til þess að fá heimild fyrir og þá enda fjárlögin í enn meiri mínus. Þetta er rosalega spennandi liður hérna.