150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

vernd uppljóstrara.

362. mál
[17:01]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir tímabært og mikilvægt frumvarp sem kemur, eins og hún réttilega sagði áðan, inn í samhengi margra mála sem hafa verið unnin og bæta stórkostlega verndina fyrir tjáningarfrelsi, upplýsingafrelsi og fjölmiðlun á Íslandi. Það er samt ágætt að nefna að ég vona að frumvarpið um gagnageymd komi aftur fram enda finnst mér ekki í lagi að lögregla hafi með einhverjum hætti aðgengi að upplýsingum sem safnast sjálfvirkt um öll fjarskipti allra, alltaf.

Þetta frumvarp nær ekki alveg yfir allt. Það nær yfir starfsmenn fyrirtækja og álíka. Það hefði hjálpað litla símamanninum svokallaða en t.d. ekki Jóhannesi Stefánssyni sem uppljóstraði um Samherjamálið. Þetta nær ekki yfir utanaðkomandi aðila, utan fyrirtækja eða stofnana, sem komast yfir upplýsingar og nær ekki yfir erlenda aðila sem gætu haft einhverjar upplýsingar sem varða við þjóðaröryggi, hagsmuni ríkisins eða hagsmuni íslenskra aðila í þeim tilfellum þar sem lögbrot koma við sögu. Fyrir vikið langar mig til að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það væri mögulegt í framhaldinu af þessu frumvarpi að vinna í átt að því að búa til heildstætt uppljóstrarafrumvarp eða viðbót við þetta sem yrði þá vonandi að lögum, sem næði yfir þau tilteknu atriði sem snúa t.d. að erlendum eða utanaðkomandi aðilum.