vernd uppljóstrara.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og vil bæta við, svo ég fari rétt með, að eitt frumvarp enn hefur heldur ekki verið klárað. Það varðar endurskoðun á fjölmiðlalögum frá árinu 2011. Ég lagði fram frumvarp þann vetur og tel raunar að ýmislegt í þeim lögum kalli á endurskoðun þeirra í ljósi þess að þetta var fyrsta heildarlöggjöfin um fjölmiðla. Margt mikilvægt kom þar inn sem byggði á þingsályktuninni frá 2010, t.d. hvað varðar vernd heimildarmanna. Eins og ég nefndi áðan er þar enn verk óunnið.
Það er hárrétt sem hv. þingmaður bendir á, þetta frumvarp miðast við opinbera og almenna vinnumarkaðinn. Hver er ástæðan? Jú, við horfðum annars vegar til þess sem hefur gengið best á Norðurlöndum og hins vegar tilskipunar Evrópusambandsins. Það nær því ekki yfir, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, fyrrverandi starfsmenn eins og fyrrverandi starfsmann Samherja sem hv. þingmaður nefndi sérstaklega. Það næði ekki yfir þá sem verða hreinlega vitni að einhverju sem þeir telja rétt að ljóstra upp um án þess að vera í starfi.
Mér finnst ekki útilokað að við tökum hitt til skoðunar en ástæðurnar fyrir því að frumvarpið er lagt svona fram eru annars vegar að við byggjum á löggjöf annarra Norðurlanda og hins vegar hin evrópsku fordæmi.