150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

vernd uppljóstrara.

362. mál
[17:05]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt og mikilvægt að við horfum á þau fordæmi sem eru til staðar, ekki síst þar sem málið snýr að vinnumarkaðslöggjöf. Hollenska löggjöfin, sem hæstv. ráðherra vísaði í áðan, er mjög gott dæmi um það sem hefur farið vel. Þetta er mjög gott skref og ég er ekki á neinn hátt að gagnrýna það. Ég hlakka bara til að frumvarpið verði að lögum. Mér finnst mikilvægt að við hefjum það samtal að ná þessum seinni parti. Ekki síst í þeim tilfellum, úr því að ég nefndi erlenda aðila, ef upp kæmi eitthvað sem varðaði hagsmuni ríkisins erlendis höfum við séð mörg dæmi um það á undanförnum árum að aðilar hafa komið fram með upplýsingar, ekki endilega gagnvart Íslandi heldur gagnvart öðrum löndum, sem hafa varðað við þjóðaröryggi eða hagsmuni ríkisins að öðru leyti í þeim löndum. Uppljóstrararnir sem koma þá upp um það hafa verið í miklum vandræðum, í senn persónulega, lagalega og með sitt almenna öryggi. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig ætti að tryggja því fólki einhvers konar lagalega vernd, þetta er mál þar sem í einhverjum tilfellum gæti orðið togstreita milli Íslands og annars ríkis, en þá þarf að vega og meta þær aðstæður. Í öllu falli held ég að það sé mikilvægt að við búum til einhvers konar löggjöf sem lýtur að þessu.