vernd uppljóstrara.
Herra forseti. Ég fagna því að hv. þingmaður telji þetta jákvætt skref. Ég tel það líka en það er hins vegar alveg hárrétt, eins og ég nefndi áðan, að þetta nær til vinnumarkaðarins. Ég nefndi áðan Norðurlöndin og Evrópusambandið. Ég get líka nefnt OECD sem nálgast málið út frá þessum vinkli. Mér finnst það áhugavert sem hv. þingmaður segir um annars konar uppljóstranir. Við erum með mörg fræg dæmi um slíkar uppljóstranir sem hafa tengst Íslandi. Ég tel að það væri gott að hv. allsherjar- og menntamálanefnd ræddi þetta og fjallaði jafnvel um málið í nefndaráliti. Án þess að ég ætli að segja nefndinni fyrir verkum held ég að það sé þarft að ræða hvort nefndin vilji skoða þetta eitthvað nánar og jafnvel beina í framhaldinu einhverjum tilmælum til framkvæmdarvaldsins. Mér finnst áhugavert að taka þetta til skoðunar í framhaldinu. Ég vonast hins vegar til þess að frumvarpið nái fram að ganga og, svo ég lýsi bara minni einlægu von, helst þannig að í þinglegri meðferð verði skilyrðin ekki þrengd heldur tel ég að við höfum komið mjög vel til móts við athugasemdir. Ég held að það væri mjög gott ef málið fengi fram að ganga, a.m.k. þannig að skilyrðin yrðu ekki þrengd frekar í þinglegri meðferð. Hitt er nokkuð sem ég tel allrar athygli virði að við ræðum áfram í framhaldinu.