tilkynning.
Forseti tók í dag, mánudaginn 18. nóvember, við undirskriftalista með nöfnum rúmlega 180.000 evrópskra borgara, en undirskriftasöfnuninni var hleypt af stað af félaginu Patagonia og WeMove, með stuðningi íslenskra náttúruverndarsamtaka. Þar er því beint til stjórnvalda og þingmanna þjóðþinga Íslands, Noregs, Skotlands og Írlands að grípa til aðgerða til að stöðva eyðingu villtra laxastofna.
Forseti þakkaði ofangreindum aðilum fyrir að standa að þessu framtaki og kom því til skila að hann myndi vekja athygli á erindi þessu á þingfundi sem og vekja athygli viðeigandi aðila, þ.e. ráðuneyta og þingnefnda, á málinu. Erindið hefur verið lagt fram á lestrarsal.