150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

samskipti Sjúkratrygginga og hjúkrunarheimila.

[15:21]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Þinginu til upplýsingar liggja málin þannig að á hverjum tíma eru um 20 samningar lausir. Allt í allt eru yfir 200 samningar í gildi við Sjúkratryggingar Íslands þannig að við erum að tala um að um 10% af þeim samningum sem eru til séu opnir á hverjum tíma og eru þar með til endurskoðunar og endurmats, enda hlýtur það að vera eðli málsins samkvæmt þannig að við getum ekki gert samninga sem endast um ókomna tíð heldur opnast þeir og báðir aðilar fá tækifæri til að endurmeta stöðuna.

Varðandi samninga við hjúkrunarheimili, af því að ég tek eftir því að hv. þingmaður er kannski sérstaklega að hugsa um þá, eru þar fjöldamörg tækifæri og vonir mínar standa til þess að samningar muni nást fyrir áramót. Þessar 276 milljónir sem hv. þingmaður nefnir eru bundnar því, og það er bara orðað þannig í afgreiðslu fjárlaga að þær eru háðar því að þær séu greiddar út sem hluti af gildum samningi. Þar sem slíkur samningur er ekki fyrir hendi er engin leið samkvæmt lögum til að greiða út einhliða, sem einhvers konar framlag fram hjá samningum, upphæð af þessu tagi. Það er þannig búið um slík mál samkvæmt lögum.

Það hafa átt sér stað mjög spennandi tilraunir til að semja á annan hátt en gert hefur verið um rekstur hjúkrunarheimila eins og til að mynda var gert við öldrunarheimilin á Akureyri þar sem var samið um það að rekstrarfé sem var áður eyrnamerkt hjúkrunarrýmum var notað fyrir dagdvalarrými. Ég held að slíkar leiðir séu í samræmi við hugmyndafræðina um að fólk geti verið lengur heima og þjónustan komi smám saman eftir þörfum.