samskipti Sjúkratrygginga og hjúkrunarheimila.
Virðulegur forseti. Ég verð bara að segja að þessi svör eru mjög rýr. Sjúkratryggingar Íslands vilja ekki fara í kostnaðarmat og ekkert mat er gert á því hvað þessi þjónusta kostar. Það er vitað mál að þetta er langt þar undir og stofnunin neitar að fara í kostnaðarmat. Fyrir utan það virðist hún neita að gera samninga og þess vegna getur hún haldið inni þessum 276 milljónum. Það er stórfurðulegt að það skuli látið viðgangast að þessi stofnun geri það sem hún vill og án þess að ráðherra geri nokkuð í málunum. Hæstv. ráðherra talar um samninga, samninga við lækna í fimm ár, var eitthvað talað við lækna áður en samningurinn rann út? Ekki orð. Sjúkratryggingar við sjúkraþjálfara, þrjú ár. Var eitthvað talað við sjúkraþjálfara til að endurnýja samninginn áður en hann rann út? Ekki orð. Það virðist vera vilji til þess að láta alla samninga renna út og gera enga nýja samninga og segja svo: Heyrðu, við getum ekki borgað af því að ekki eru gerðir neinir samningar. Þetta er stórfurðulegt.