samskipti Sjúkratrygginga og hjúkrunarheimila.
Virðulegur forseti. Sjúkratryggingar Íslands hafa það hlutverk samkvæmt lögum að semja um kaup á heilbrigðisþjónustu og fara þarf bæði að þeim samningsmarkmiðum sem koma frá ráðuneytinu en líka að láta samningana standast fjárlög, því að það eru einnig lög. Það er því dálítið djúpt í árinni tekið hjá hv. þingmanni að tala um að það sé markmið hjá Sjúkratryggingum Íslands að láta alla samningar renna út og slíkar fullyrðingar standast enga skoðun. Þær eru ómálefnalegar og ekki til þess fallnar að við náum einhverri sameiginlegri sýn á þetta mikilvæga hlutverk Sjúkratrygginga Íslands í kaupum á heilbrigðisþjónustu. Þetta er vandmeðfarið verkefni en það verður að vera í samræmi við samningsmarkmið sem koma frá ráðuneytinu hverju sinni en líka þannig að það standist fjárlög. Við höfum verið með það ástand, bæði að því er varðar sjúkraþjálfara og sérgreinalækna, að ekki hafa verið nein takmörk á því hvað hefur farið út úr ríkissjóði inn í viðkomandi samninga. Það er verkefni mitt að láta þá samninga standast fjárlög (Forseti hringir.) vegna þess að fjárlög eru nefnilega, þingmanninum til upplýsingar, líka lög sem við þurfum að fara að. (Forseti hringir.) Ég held að það sé ekki þessu verkefni til framdráttar ef þingmenn taka sér stöðu gegn Sjúkratryggingum Íslands.