Landsvirkjun og upplýsingalög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Í upplýsingalögum er gert ráð fyrir því að forsætisráðherra hverju sinni geti veitt undanþágu frá upplýsingalögum að fenginni umsögn ákveðinna fagaðila, m.a. Samkeppniseftirlitsins. Landsvirkjun hefur verið með slíka undanþágu. Þáverandi hæstv. forsætisráðherra veitti slíka undanþágu árið 2013 og endurnýjaði hana árið 2016 og hún var endurnýjuð nýlega af þeirri sem hér stendur, 2019, vegna samkeppnissjónarmiða sem Samkeppniseftirlitið taldi, eins og það er orðað í síðustu umsögn til forsætisráðuneytisins, að rök stæðu enn til að Landsvirkjun fengi að njóta undanþágu frá upplýsingalögum samkvæmt 2. mgr. 3. gr. upplýsingalaga.
Eins og ég nefndi áðan voru slíkar undanþágur veittar í júní 2013 og aftur í júní 2016 og fyrir þeim standa ákveðin rök, fyrst og fremst þau að Landsvirkjun er ekki eina fyrirtækið á markaði heldur er á markaði sem er að hluta til í samkeppni við bæði einkaaðila og önnur fyrirtæki. Hins vegar skil ég alveg þau sjónarmið sem birtast hjá hv. þingmanni, þ.e. það kann að vera að rök standi til þess að ákveðin fyrirtæki á markaði sem eru í eigu hins opinbera að 51% eða meira séu undanþegin upplýsingalögum, en hvernig getur Alþingi rækt þá skyldu sína að hafa eftirlit með þeim fyrirtækjum? Þessi fyrirtæki eru með stjórnir sem hafa það hlutverk að einhverju leyti og eins og kunnugt er hefur verið ákveðið samráð milli flokka á Alþingi um hvernig skipað er í þær stjórnir. Mér finnst alveg ástæða til að eiga samtal við hv. þingmann um það hvernig við getum síðan tryggt að þingmenn, eða Alþingi sem slíkt, einstakar nefndir þingsins, t.d. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, geti kynnt sér málefni sem eigi síður að heyra almennt undir þessa undanþágu.