150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 210/2019 um breytingu á I. og II. viðauka við EES-samninginn.

274. mál
[16:21]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar þar sem leitað er heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá því í september á þessu ári um breytingu á I. viðauka EES-samningsins, en sá samningur fjallar um heilbrigði dýra og plantna, og einnig breytingu á II. viðauka samningsins er varðar tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun. Um leið er óskað eftir heimild til að fella inn í samninginn reglugerð Evrópusambandsins frá árinu 2017, nr. 2017/625, um opinbert eftirlit og aðra opinbera starfsemi sem miðar að því að tryggja að lögum um matvæli og fóður og reglum um heilbrigði og velferð dýra, plöntuheilbrigði og plöntuverndarvörur sé beitt og um breytingu á ýmsum reglugerðum Evrópuþingsins sem upp eru taldar í nefndaráliti á þskj. 485.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og leggur nefndin til að hún verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson og Smári McCarthy. Aðrir nefndarmenn hv. utanríkismálanefndar voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.