varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá 6. þm. Reykv. s., Kolbeini Óttarssyni Proppé, um að hann verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Einnig hafa borist bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Albertína Friðbjörg Elíasdóttir geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni og frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðlaugur Þór Þórðarson verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum.
Í dag, mánudaginn 25. nóvember, taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Orri Páll Jóhannsson, 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, María Hjálmarsdóttir, og 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykv. n., Herdís Anna Þorvaldsdóttir, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.
Orri Páll Jóhannsson og María Hjálmarsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.