viðbrögð ráðherra við mótmælum á Austurvelli.
Forseti. Síðastliðinn laugardag stóðu rúmlega 4.000 manns á Austurvelli og lögðu fram skýrar kröfur sem mér finnst nauðsynlegt að endurtaka hér á þingi. Í fyrsta lagi var lögð fram sú krafa að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segði tafarlaust af sér embætti. Í öðru lagi krafðist fundurinn þess að Alþingi lögfesti nýja og endurskoðaða stjórnarskrá sem landsmenn sömdu sér og samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012, að sjálfsögðu með því auðlindaákvæði sem kjósendur samþykktu. Í þriðja lagi krafðist fundurinn þess að arður af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna renni í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins og til að tryggja mannsæmandi lífskjör allra.
Forseti. Ég spyr hæstv. ráðherra hver viðbrögð hans eru við fundinum og kröfunum sem þar voru settar fram.