biðlistar í heilbrigðiskerfinu og samstarf við einkaaðila.
Virðulegi forseti. Ég mun ekki gera slíka tillögu hér í fjárlagagerðinni enda held ég að það verkefni sem við stöndum frammi fyrir sé af allt öðrum toga. Ég get upplýst hv. þingmann um að við heilbrigðisráðherra höfum átt samtal um þessi mál oftar en einu sinni og ég finn ekki annað en að við séum í öllum grundvallaratriðum sammála um að okkur beri að nýta fjármunina sem allra best. Ég ætla hins vegar að segja það sem mína skoðun að ég held að héðan frá Alþingi hafi komið allt of lítið aðhald með kerfinu og svo held ég líka að við höfum í allt of mörg ár vanrækt að byggja upp skrifstofur í heilbrigðisráðuneytinu sem geta veitt þessu risastóra heilbrigðiskerfi okkar almennilegt aðhald. Við þessu höfum við í ríkisstjórninni þegar brugðist með því að setja aukna fjármuni inn á aðalskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins, svo að dæmi sé tekið, sem verður vonandi betur í stakk búið til að greina vandann sem er að finna í kerfinu.
Eitt sem við sjáum t.d., þegar við erum að ræða þetta milli ráðuneyta, er að mjög erfitt er að fá upplýsingar um biðlistana út úr heilbrigðiskerfinu. Þar er ekki við heilbrigðisráðuneytið sjálft að sakast eða stefnumörkun ríkisstjórnarinnar heldur hefur því ekki verið forgangsraðað með réttum hætti á stærstu heilbrigðisstofnununum og eftir atvikum hjá Sjúkratryggingum. Ég skal ekki úttala mig um það. Hér er ég kominn kannski full djúpt inn í málaflokk sem er ekki á mínu sérsviði, en a.m.k. er alveg ljóst að það eru ekki auðfengnar upplýsingar um það nákvæmlega hver staðan er og við heilbrigðisráðherra erum sammála um að það er óásættanlegt.