nýskógrækt.
Herra forseti. Ég hafði ætlað mér að koma með smáinnlegg um mikilvægi skóga en ætla að breyta því og koma aðeins inn á það sem hv. þingmaður á undan mér nefndi um kolefnishlutleysi og mikilvægi þess. Við getum nefnilega ekki komið í veg fyrir losun kolefnis og er ég ekki að tala um eldgos, nú er ég bara að tala um losun kolefnis af mannavöldum, losun kolefnis úr skemmdu landi o.s.frv. Kolefnishlutleysi með bindingu á móti þeirri losun sem verður verður alltaf mjög mikilvægt þannig að við þurfum alltaf að hafa það í huga að við þurfum að gera hvort tveggja, minnka losun og auka bindingu.