150. löggjafarþing — 34. fundur,  25. nóv. 2019.

aðlögun að loftslagsbreytingum og aðgerðaáætlun þar að lútandi.

349. mál
[17:31]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Það er enn ljóðað á hæstv. umhverfisráðherra. Hraðar sviptingar í lofthjúpi jarðar valda veðurfarsbreytingum, versnandi vindafari og aukinni úrkomu víðast hvar á norðurslóðum. Það er aukið rennsli jökulfljóta og aukin skriðuhætta og enn stærri berghlaup geta fallið, hækkandi sjávarborð, strandrof og fleira. Hver eru viðbrögðin? Það eru flóðavarnir inni á landi og við strendur og varnargarðar við fljót og strendur. Aukin vöktun er í umhverfinu og síðast en ekki síst tjónabætur og kostnaður við ýmiss konar framkvæmdir. Þetta leiðir allt hugann að ofanflóðasjóði, hamfarasjóði, loftslagssjóði og þjóðarsjóði. Ég spyr í framhaldi af þessu: Hver telur ráðherra að séu brýnustu verkefni samfélagsins við aðlögun að loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra? Þá er ég bæði að tala um fjármagn og annars konar viðbrögð.

Þá vík ég að aðgerðaáætlun í þessum efnum. Hlutverk loftslagsráðs er að leggja fram aðgerðaáætlun varðandi losun og bindingu sem hér hefur verið töluvert til umræðu vegna skógræktar. Samkvæmt lögum um loftslagsmál, í svokallaðri 5. gr. a, á loftslagsráð líka að vinna að aðgerðaáætlun um aðlögun gegn loftslagsbreytingum. Þá er spurningin hvað henni líður, það er aukaspurning sem ég ætla að biðja hæstv. ráðherra að svara í rólegheitum. Svo er hitt áfram, að opinberir aðilar eiga samkvæmt lögum að setja sér loftslagsstefnu. Þegar allt þetta kemur saman kallar það á heildstæða aðgerðaáætlun vegna aðlögunar að loftslagsbreytingum. Nákvæmlega þetta er að verða æ algengara umræðuefni erlendis vegna þess að menn finna æ meira fyrir þessum afleiðingum og þurfa að fara að haska sér við að búa til skynsamlegar aðgerðaáætlanir í þessum efnum.

Ég hef við önnur tækifæri fjallað um annaðhvort sérráð eða mögulegan sérhóp, einhvers konar undirhóp loftslagsráðs, sem einbeiti sér að aðlögun að loftslagsbreytingum sem kallar t.d. á virkari þátt aðila eins og almannavarna sem við sjáum lítið til í bili. Þar gætu verið, auk þessara almannavarna, í slíkum hópi Landsbjörg og stofnanir eins og Veðurstofa Íslands, Mannvirkjastofnun, Samgöngustofa, Vegagerðin og Samband íslenskra sveitarfélaga. Þá spyr ég: Hvernig geta Alþingi, ríkisstjórn, sveitarfélög og aðrir haft forystu um að unnin (Forseti hringir.) verði haldbær aðgerðaáætlun á næstu árum vegna aðlögunarinnar?