150. löggjafarþing — 35. fundur,  26. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[14:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir andsvarið. Ég skal bara viðurkenna að ég náði ekki spurningunni, um hvað þetta fjallar nákvæmlega í þeim breytingum sem ég fór yfir hér áðan. Ég ætla að biðja hv. þingmann um að skýra málið frekar í seinna andsvari þannig að ég geti mögulega svarað.