orð samgönguráðherra um stjórnarandstöðuna.
Virðulegi forseti. Í ljósi þess sem virðulegur forseti sagði, að við værum að samþykkja fjárlög snemma á árinu, vil ég halda því til haga að ef það sama gerist þegar nær dregur jólum og gerist ítrekað hér, að það verður tímaskortur, hlýtur það að liggja fyrir og vera óumdeilt að ekki sé hægt að kenna stjórnarandstöðunni um. Mér finnst mikilvægt að halda því til haga vegna þess að ég tek eftir því að það kemur ekkert voðalega mikið af þingmannamálum út úr nefndum. Það er væntanlega vegna þess að þingið hefur sinn vanagang, eins og við segjum. En munum bara hver vaninn er, munum hvað það er sem við viljum laga og munum eftir því að þetta þing hefur verið ótrúlega málefnalegt. Stjórnarandstaðan hefur haldið aftur af sér við að beita sömu töktum og hafa tíðkast í gegnum tíðina. Ég vil að það sé fært til bókar en fagna því að virðulegur forseti hafi tekið þetta fram. Þá liggur það fyrir og er sjálfkrafa fært til bókar og við getum minnt stjórnarmeirihlutann á það síðar meir ef sú staða kemur upp sem ég vona, og vona að allir voni, að komi ekki upp.