orð samgönguráðherra um stjórnarandstöðuna.
Virðulegur forseti. Þetta er kannski ekki beint um fundarstjórn forseta en hafi ég sofnað í atkvæðaskýringum áðan og Samfylkingin virkilega stutt eina tillögu frá ríkisstjórninni er ég bara glaður með það og biðst afsökunar á því að ég hafi haldið öðru fram. En við atkvæðagreiðslu við 2. umr. fannst mér einmitt eftirtektarvert að svo var ekki og vona að ég hafi rétt fyrir mér með það. En ég er alveg fús að koma hingað upp og biðjast afsökunar. Ég hef sennilega sofnað í þessum flóknu atkvæðaskýringum þegar stjórnarandstaðan var að bera blak af því að þingmenn hennar gætu ekki stutt hverjir aðra.