150. löggjafarþing — 37. fundur,  28. nóv. 2019.

umferðarlög.

396. mál
[12:02]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019. Ný umferðarlög munu taka gildi 1. janúar 2020 og umhverfis- og samgöngunefnd flytur þessa breytingu á þeim lögum. Þegar farið var að vinna með nýsamþykkt umferðarlög og m.a. útbúa sektarreglugerð komu upp tæknileg vandamál. Það eru mörg ákvæði í umferðarlögum og þetta er viðamikill bálkur. Bæði þarf að fara yfir hvað má og hvað má ekki og svo líka viðurlögin við því. Þarna eru nokkrar tengingar á milli sem þarf að leiðrétta og þess vegna flytur hv. umhverfis- og samgöngunefnd það frumvarp sem ég mæli hér fyrir núna.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nýjum umferðarlögum sem samþykkt voru á 149. löggjafarþingi og taka gildi um áramót. Lagfærðar eru tilvísanir til tiltekinna ákvæða er varða sektum samkvæmt 94. gr. laganna, en þar skortir einmitt eins og ég sagði áðan tilvísanir til refsiverðra brota. Svo er líka verið að fjalla um annað varðandi ítrekunaráhrif vegna ölvunaraksturs þar sem við breyttum því að hafa refsilaust að keyra með áfengismagn í blóði úr 0,5‰ í 0,2‰. Það er bannað samkvæmt umferðarlögum en er refsilaust og þess vegna þarf að fjarlægja það úr ítrekunarkaflanum.

Svo voru, eins og ég sagði áðan, nokkrar tilvísanir varðandi flutning farms og um breidd, lengd og hæð ökutækja sem hafði ekki ratað inn í viðurlagakaflann sem þarf að bæta við. Það skorti tilvísanir í skyldu til að hlíta fyrirmælum vegaeftirlitsmanna og um upplýsingaskyldu vegna vegaeftirlits. Þarna er um að ræða vegaeftirlitsmenn sem eru lögreglu til aðstoðar. Það er ekki verið að breyta frá því fyrirkomulagi sem er í dag, lögreglan sér að sjálfsögðu um þetta eftirlit en hún getur haft með sér svokallaða vegaeftirlitsmenn sem þurfa að hafa þessa heimild og er verið að bæta því við.

Einnig er verið að breyta því hver gefur út starfsleyfi ökukennara. Það var sett inn til Samgöngustofu en það er í höndum sýslumanna og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eins og staðan er í dag. Það voru engin áform um að breyta því fyrirkomulagi. Þó að það hafi staðið Samgöngustofa var gert ráð fyrir að sýslumenn og lögregla héldu þessu áfram en það fer betur á því að fjalla bara um þá sem gefa út þessi starfsleyfi í staðinn fyrir að nefna Samgöngustofu og þess vegna er lögð til breyting á því.

Að öðru leyti ætla ég bara að vísa í frumvarpið og greinargerðina með því og ekki fara nánar yfir það. Eins og ég segi eru þetta leiðréttingar en ekki efnislegar breytingar frá því sem áformað var í nýsamþykktum umferðarlögum og ég fagna því að það styttist í að þau taki gildi.