150. löggjafarþing — 37. fundur,  28. nóv. 2019.

skráning einstaklinga.

101. mál
[14:26]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir meirihlutaáliti allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um skráningu einstaklinga.

Nefndin fjallaði mikið og vel um þetta mál og fékk á sinn fund marga hagaðila og eins bárust henni umsagnir frá Hagstofu Íslands, Hveragerðisbæ, Persónuvernd, Reykjavíkurborg, ríkisskattstjóra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Samtökum fjármálafyrirtækja, Tryggingastofnun ríkisins og Þjóðskrá Íslands. Tilgangur frumvarpsins er að setja ný heildarlög um skráningu einstaklinga og á að koma í staðinn fyrir lög um þjóðskrá og almannaskráningu sem eru frá því 1962. Frumvarpinu er sérstaklega ætlað að færa almannaskráningar í nútímalegt horf til samræmis við samfélags- og tæknibreytingar.

Ég ætla að fara aðeins yfir þetta álit, það eru nokkrar breytingar sem nefndin gerði sem ég tel mikilvægt að komi fram. Það er breyting við 5. gr. sem varðar Persónuvernd. Í umsögn Persónuverndar um frumvarpið barst ábending um það að Þjóðskrá Íslands hefði ekki málefnalegar ástæður til þess að vinna með upplýsingar um þjóðernislegan uppruna og eðlilegra væri að nota ríkisfang og fæðingarland. Undir þetta tekur meiri hlutinn og leggur til að hugtakið þjóðerni falli brott úr upptalningu í 5. gr. og í staðinn komi ríkisfang og fæðingarland. Jafnframt leggur meiri hlutinn til að trúarbrögð falli brott úr þessari sömu grein og í stað þeirra komi skráning í trú- og lífsskoðunarfélög.

Meiri hlutinn leggur líka til að fyrirsögn greinarinnar verði breytt í Vinnsla persónuupplýsinga í samræmi við umsögn Persónuverndar enda lýsi það betur innihaldi hennar.

Varðandi 6. gr., um skráningarupplýsingar í þjóðskrá, benti Þjóðskrá Íslands á við meðferð þessa máls að þegar frumvarpið hefði verið unnið hefði horfið úr upptalningunni í 1. mgr. 6. gr. að í þjóðskrá væru skráðar upplýsingar um fæðingarstað. Tekur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið undir að rétt sé að bæta við fæðingarstað við þessa upptalningu sem nú þegar er til staðar.

Í 2. mgr. 6. gr. er kveðið á um heimild Þjóðskrár Íslands til þess að skrá aðrar upplýsingar en fram koma í frumvarpinu vegna sérstakra verkefna, hagsmuna hins opinbera eða alþjóðlegra skuldbindinga. Hagstofa Íslands bendir á að stofnunin sinni opinberri hagskýrslugerð sem sé gríðarlega mikilvæg fyrir marga þætti samfélagsins og af því tilefni leggur meiri hlutinn til í samræmi við umsögnina og afstöðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að við 2. mgr. 6. gr. verði bætt heimild til skráningar upplýsinga vegna hagskýrslugerðar.

Þá um kerfiskennitölu og sérstaka skráningu í 11. gr. Það kom fram hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga við meðferð málsins að í umfjöllun í greinargerð um 11. gr. væru nefnd dæmi um opinbera aðila sem gætu haft milligöngu um skráningu kerfiskennitölu. Það var ekki getið um hlutverk sveitarfélaga og það fannst sambandinu ekki gott þar sem þau ættu að teljast til opinberra stjórnvalda. Undir það tökum við í meiri hlutanum og bendum á að sveitarfélög teljast að sjálfsögðu til þeirra opinberu aðila sem eiga að teljast upp í 11. gr.

Persónuvernd benti á í umsögn sinni að við setningu reglugerðar á grundvelli þessarar sömu greinar þyrfti að kveða skýrt á um hvaða persónuupplýsingar væru skráðar við útgáfu kerfiskennitölu. Undir það tekur meiri hlutinn með Persónuvernd og hvetur til þess að þegar reglugerðin verður unnin verði gætt að skýrleika og meðalhófi og ekki séu skráðar frekari upplýsingar en nauðsynlegt er.

Nefndin fjallaði um efni 12. gr. og þær umsagnir sem nokkrir aðilar bentu á um nauðsyn þess að hafa heimild til ákveðinnar meðferðar upplýsinga úr þjóðskrá. Ríkisskattstjóri benti á að embættið byggði skattgrunnskrá sína á afriti af þjóðskrá sem fjallað er um í 5. mgr. 12. gr. Meiri hlutinn telur að reglugerðir þær sem kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 12. gr. um að Þjóðskrá Íslands geti miðlað eða veitt miðlurum leyfi til að annast miðlun þjóðskrár og veitt undanþágur frá banni við heildarafhendingu þjóðskrár séu fullnægjandi til að ríkisskattstjóri og aðrir opinberir aðilar geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Enn fremur mun fyrirhuguð reglugerð fara í opið samráð samkvæmt upplýsingum sem nefndinni bárust við meðferð málsins auk þess sem sérstaklega verður haft samráð við stóra hagsmunaaðila á borð við ríkisskattstjóra. Meiri hlutinn telur því ekki ástæðu til að geta sérstaklega um það í ákvæðinu hvaða aðilum verður heimilt að nota þjóðskrá á annan hátt en þar kemur fram.

Í samræmi við umsögn Persónuverndar telur meiri hlutinn að í ljósi þess eftirlitshlutverks sem Persónuvernd er falið í lögum verði Þjóðskrá Íslands ekki falið eftirlit með lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga á þann hátt sem gert er ráð fyrir í greinargerð með frumvarpinu. Meiri hlutinn áréttar þó að Þjóðskrá Íslands hefur eftirlit með miðlun þjóðskrár en Persónuvernd fer með eftirlit með því að skilyrði persónuverndar séu uppfyllt í samræmi við lögbundið hlutverk sitt. Meiri hlutinn telur því ekki ástæðu til að gera breytingar á þeim hluta 12. gr. sem kveður á um eftirlit með miðlun þjóðskrár.

Um vernd skráðra einstaklinga gegn afhendingu upplýsinga í 14. gr. benti ríkisskattstjóri á að æskilegt væri að þeir sem njóta verndar samkvæmt þeirri grein yrðu sérstaklega merktir í skránni svo hægt yrði að greina á milli þeirra og þeirra sem eru óstaðsettir í hús. Meiri hlutinn telur að sérstakar merkingar auki skilvirkni og falli vel að markmiðum um persónuvernd og hvetur til að slíkar merkingar verði viðhafðar.

Mig langar að gera hér grein fyrir mikilli breytingu sem nefndin leggur til á 3. mgr. 15. gr. og ég ætla að fá að lesa hana upp, með leyfi forseta. 3. mgr. orðist með þessum hætti:

„Þjóðskrá Íslands heldur skrá yfir þá sem andmæla því að nöfn þeirra séu notuð í markaðssetningarstarfsemi. Ráðherra setur, í samráði við Þjóðskrá Íslands og Persónuvernd, nánari reglur um gerð og notkun slíkrar skrár og hvaða upplýsingar skuli koma þar fram. Ábyrgðaraðilar sem starfa í beinni markaðssókn og þeir sem nota skrá með nöfnum, heimilisföngum, netföngum, símanúmerum og þess háttar eða miðla þeim til þriðja aðila í tengslum við slíka starfsemi skulu, áður en slík skrá er notuð í slíkum tilgangi, bera hana saman við skrá Þjóðskrár Íslands til að koma í veg fyrir að markpóstur verði sendur eða hringt verði til einstaklinga sem hafa andmælt slíku. Þjóðskrá Íslands getur heimilað undanþágu frá þessari skyldu í sérstökum tilvikum í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.“

Ég vildi bara fara yfir þetta af því að þetta er mjög mikil breyting á greininni.

Við meðferð málsins var allmikið fjallað um ákvæði um gjaldtöku, kostnað við rekstur og fjármögnun Þjóðskrár Íslands. Að því er snertir gjaldtökuheimild í 19. gr. bentu Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Samtök fjármálafyrirtækja á að nauðsynlegt væri að skýrt yrði hvernig tekjum í formi þjónustugjalda yrði ráðstafað. Nefndinni bárust ítarlegar upplýsingar frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um þau sjónarmið sem voru höfð til hliðsjónar þegar gjaldtökuákvæðið var samið. Þar kom fram að stuðst hefði verið við sambærileg ákvæði annarra laga, lögskýringargögn, dóma Hæstaréttar og leiðbeiningar fjármála- og efnahagsráðuneytisins, auk þess sem sérstök hliðsjón hefði verið höfð af gjaldtökuákvæði laga um Samgöngustofu sem Ríkisendurskoðun fjallaði um og taldi styðjast við skýrar forsendur. Meiri hlutinn telur því ákvæðið um gjaldtökuheimildir samræmast þeim kröfum sem gerðar eru um skýrleika slíkra ákvæða.

Í 20. gr. frumvarpsins kemur fram að Þjóðskrá Íslands og Tryggingastofnun standi straum af árlegum kostnaði við rekstur þjóðskrár. Meiri hlutinn bendir á að aðrar ráðstafanir gætu hentað betur því að fyrirhugað er samkvæmt greinargerð með frumvarpinu að setja á fót vinnuhóp í því skyni að greina samfélagslegan ávinning af því að upplýsingar úr þjóðskrá og öðrum grunnskrám stofnunarinnar verði gjaldfrjálsar. Meiri hlutinn telur brýnt að gerð verði úttekt á því hvaða fyrirkomulag sé best til þess fallið að fjármagna stofnunina, þ.e. hvort fjármögnun skuli byggð eingöngu á fjárlögum, gjaldtöku eða hvoru tveggja. Þar sem slík úttekt hefur ekki farið fram telur meiri hlutinn ekki tímabært að gera breytingar á ákvæðum frumvarpsins er varða gjaldtöku og rekstur stofnunarinnar.

Þá var við meðferð málsins nokkuð rætt um 3. mgr. 21. gr. sem kveður á um að sveitarfélög eigi rétt á gjaldfrjálsri íbúaskrá árlega. Sú gjaldtaka var sérstaklega rædd með hliðsjón af þeirri skyldu sem lögð er á sveitarfélög í 3. mgr. 17. gr. að yfirfara íbúaskrá sína eigi sjaldnar en þrisvar á ári. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið sveitarfélaganna um að þau skuli fá gjaldfrjáls eintök til að sinna lögbundnu hlutverki sínu og leggur það til.

Hagstofan lagði til í umsögn sinni að efni 3. málsliðar 2. mgr. 21. gr. yrði útvíkkað á þann veg að símanúmerum og tölvupóstföngum yrði bætt við upptalninguna á þeim upplýsingum sem Þjóðskrá Íslands léti Hagstofunni í té um þátttakendur í úrtaksrannsóknum hennar. Í ljósi þess að Þjóðskrá Íslands safnar almennt ekki framangreindum upplýsingum þrátt fyrir að stundum séu þær skráðar leggur meiri hlutinn til að í ákvæðinu verði mælt fyrir um að Þjóðskrá Íslands skuli aðstoða Hagstofu Íslands eftir föngum við að finna upplýsingar um þátttakendur í úrtaksrannsóknum hennar enda eru upplýsingarnar skráðar í þjóðskrá. Meiri hlutinn telur að framangreind breyting stuðli að því að Hagstofa Íslands geti sem best sinnt hlutverki sínu án þess að kvaðir séu lagðar á Þjóðskrá Íslands sem stofnunin getur ekki uppfyllt.

Það kom líka fram ábending frá Persónuvernd þess efnis að í lögum nr. 90/2018 væri kveðið á um ýmsar sérreglur um tiltekin svið, m.a. um bannskrá Þjóðskrár Íslands. Sum þessara ákvæða ættu frekar heima í sérlögum en hefðu þó verið höfð í lögum um persónuvernd meðan ekki var ljóst hvort þau yrðu fest annars staðar í lög í því skyni að koma í veg fyrir lagalegt tómarúm og lakari réttarvernd. Betur færi á því að sérákvæði sem þessi yrðu tiltekin í sérlögum á borð við lög um skráningu einstaklinga. Meiri hlutinn leggur því til í samráði við Persónuvernd að 2. og 3. mgr. 21. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga verði felldar úr lögunum og efni þeirra, eftir því sem við á, fært í 3. mgr. 15. gr. laga um skráningu einstaklinga.

Þá leggur meiri hlutinn til að hugtakinu úrtaksaðili verði bætt við orðskýringar 4. gr. og að 2. mgr. 16. gr. verði felld brott þar sem hún er efnislega samhljóða g-lið 1. mgr. 19. gr. Loks eru lagðar til tæknilegar lagfæringar.

Að öllu framansögðu leggur meiri hlutinn til að málið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Undir þetta álit rita hv. þingmenn Páll Magnússon, Anna Kolbrún Árnadóttir, Birgir Ármannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Hjálmar Bogi Hafliðason og með fyrirvara eru Andrés Ingi Jónsson, Guðmundur Andri Thorsson og Jón Steindór Valdimarsson um þá þætti frumvarpsins sem snúa að skráningu trúar- og lífsskoðana.