150. löggjafarþing — 37. fundur,  28. nóv. 2019.

skráning einstaklinga.

101. mál
[14:38]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Helgi Hrafn Gunnarsson) (P):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar sem samanstendur af þeim sem hér stendur. Ég veit að það er verið að reyna að afnema þá tísku að lesa einfaldlega upp nefndarálitin sem eru lögð fram en ég get ekki stillt mig um að lesa upp orðrétt, alla vega byrjun fyrsta kafla nefndarálitsins. En fyrst vil ég bara segja að minni hlutinn fagnar þessu frumvarpi. Þetta er mjög gott frumvarp, mjög til bóta miðað við það sem fyrir er. Ég er ekki viss um að ég myndi styðja það að setja þessi lög ef þau væru engin fyrir, þ.e. að koma á fót þessu fyrirkomulagi ef ekkert slíkt væri til staðar fyrir. Það er eins og með margt í samfélaginu, þar er ýmislegt sem við höfum vanist og í raun og veru hannað okkar samfélag í kringum en grundvallast á einhverju sem við hefðum kannski ekki samþykkt ef það væri að koma fyrst fram núna. Það fyrsta sem manni dettur í hug er kannski fyrirkomulag höfundaréttar. Það er algerlega óhugsandi í mínum huga að því yrði komið á fót eins og það er í núverandi mynd ef enginn væri höfundarétturinn fyrir. En sömuleiðis er fyrirbærið þjóðskrá, þessi ofboðslega mikla gagnasöfnun ríkisins um borgara Íslands.

Að því sögðu er þetta frumvarp mjög gott. Þetta er bein afleiðing af GDPR-reglugerð Evrópusambandsins sem við leiddum í lög nýlega og stóreykur rétt fólks til friðhelgi einkalífs. Svo að því sé haldið til haga komu þær góðu breytingar frá útlöndum. Þær komu frá Evrópusambandinu. Svo að það gleymist ekki. Einnig tel ég breytingartillögur meiri hlutans vera jákvæðar og kem til með að greiða atkvæði með þeim. Munurinn er kannski helst sá á minni hluta og meiri hluta í þessu frumvarpi að minni hlutinn vill ganga lengra í því að verja réttindi borgaranna fyrir gegndarlausri upplýsingasöfnun yfirvalda.

Þá kemur að örstuttum lestri beint upp úr nefndaráliti minni hlutans, með leyfi virðulegs forseta:

„Minni hlutinn telur að fyrirkomulag þjóðskrár á Íslandi hafi frá upphafi verið vafasamt og hafi orðið enn vafasamara eftir því sem upplýsingatækni hefur fleygt fram. Skráning einstaklinga er óvefengjanlega gagnleg en hvort tveggja til málefnalegra og ómálefnalegra afskipta af einkahögum almennra borgara. Sem dæmi þurfa einstaklingar að gefa upp til opinberrar uppflettingar sinn reglulega samastað, þ.e. lögheimili sitt. Þrátt fyrir að augljóst sé hvaða áhrif slík opinber skráning getur haft á persónulegt öryggi fólks hefur það almennt verið talið sjálfsagt í íslensku samfélagi að hið opinbera haldi skrá yfir þessar viðkvæmu og persónulegu upplýsingar til almennrar uppflettingar.“

Þarna átta ég mig á að er hugsanlega um frekar róttæka hugmynd að ræða í augum mjög margra. Það er sú hugmynd að samastaður manns, hvar maður sefur, hvar maður geymir dótið sitt og hvar maður elur upp börnin sín, sé kannski bara persónulegt atriði í lífi hverrar manneskju sem viðkomandi eigi bara að fá að hafa svolítið í friði. Ég veit að þetta er ábyggilega mjög róttækt í hugum mjög margra Íslendinga sem eru vanir því að hér sé safnað upplýsingum og dreift til meira eða minna allra um alla. Þó er í 14. gr. frumvarpsins mikil bót sem felst í því að það er hægt að óska eftir sérstakri vernd. Þessi vernd er hugsuð fyrir fólk sem getur einhvern veginn sýnt fram á að það stofni öryggi þess eða lögmætum hagsmunum á annan hátt í hættu að vera til opinberrar uppflettingar. Þá er hægt að fá fram einhvers konar takmörkun eða bann við því að upplýsingum um nafn og lögheimili sé dreift. Upplýsingunum er enn þá safnað en það má ekki dreifa þeim.

Athugasemdin sem minni hlutinn gerir við þessa grein er sú að þarna þarf hinn skráði að sýna sérstaklega fram á með rökum og jafnvel gögnum hvers vegna hann þurfi þessa sérstöku vernd. Minni hlutinn getur svo sem tekið undir að alla vega miðað við allt fyrirkomulagið á Íslandi, hvernig hlutirnir virka með kennitölur og nöfn og svoleiðis, geti það verið málefnalegt þegar kemur að nafni fólks en hins vegar þegar kemur að lögheimili fólks áttar minni hlutinn sig hreinlega ekki alveg á því hvers vegna það eigi að vera skýlaus réttur annarra að fletta upp þessum reglulega samastað, nefnilega lögheimili fólks, nema það sé sérstaklega sýnt fram á það með einhverjum rökum og gögnum að það sé beinlínis hættulegt að gera svo. Því leggur minni hlutinn til þá breytingu að skráður einstaklingur geti einfaldlega óskað eftir því að lögheimilisupplýsingum um hann verði ekki dreift og þá verði þeim einfaldlega ekki dreift. Ég verð að bæta við að mér finnst skrýtið hversu lítið hefur verið fjallað um þau augljósu öryggissjónarmið sem snerta þetta.

Þá vil ég víkja að trú og lífsskoðunum. Það eru jafnvel enn þá viðkvæmari upplýsingar. Fyrst skal halda einu til haga í sambandi við þetta frumvarp og viðhorf nefndarinnar og viðhorf þeirra sem sömdu þetta frumvarp: Það er alveg gerð tilraun til að hafa þetta „dipló“, þ.e. skráningu á trúarskoðunum fólks. Það er nefnilega ekki lögð til í nefndaráliti meiri hlutans beinlínis skráning á trúarskoðunum fólks heldur skráning í trú- eða lífsskoðunarfélag, sem vitaskuld er nákvæmlega það sama í langflestum tilfellum en felur hins vegar lagatæknilega í sér að þar er um að ræða skráningu sem alla vega samkvæmt orðanna hljóðan er ekki endilega trúarleg sannfæring viðkomandi og þar af leiðandi ekki skráning á viðkvæmum persónuupplýsingum, vill fólk væntanlega meina.

Nú er hægt að misnota allar persónuupplýsingar á einhvern hátt, bæði réttar og rangar, bæði viðkvæmar og ekki viðkvæmar, og þær eru misnotaðar af ýmsum aðilum, ekki bara yfirvöldum heldur kannski reyndar mestmegnis einkaaðilum þessa dagana, út af internet- og tæknilegum ástæðum. En það er eitt sem við skráum hérna á Íslandi sem er skráning í trúfélag sem ég ætla nú bara að segja að sé bara skráning á trú og lífsskoðunum fólks í reynd. Það er það sem það er þegar allt kemur til alls. Og dæmin sem við höfum úr sögunni þegar slíkar upplýsingar eru misnotaðar eru hræðileg. Það eru ekkert minna en hræðilegustu dæmin sem við höfum um mannvonsku fólks. Það er t.d. eitt dæmi. Ég veit að það þykir ekki fínt í pólitík nokkurn tímann að tala um nasista eða tala eins og þeir hafi nokkru sinni verið til eða gert eitthvað, það er alltaf látið eins og það sé bara einhver draugasaga, einhver tröllasaga sem eigi sér enga stoð í raunveruleikanum en það er samt þannig að nasistar voru til og eru reyndar enn þá til og þeir náðu í alvörunni völdum í Þýskalandi og leiðtogi þeirra var í alvörunni manneskja sem hét Adolf Hitler. Hann var til. Hann var sem sagt ekki vampýra eða draugur. Hann var maður af holdi og blóði sem náði völdum og hann náði völdum í tvennum kosningum. Nasistar rústuðu kosningunum 1932, reyndar alla vega tvennum kosningum sem ég las mér til um nýlega. Þeir náðu völdum lýðræðislega. Það gleymist alltaf. Auðvitað réttlætir það ekkert voðaverkin sem þeir frömdu, bara svona í ljósi þess hvernig stjórnmálaástandið á Vesturlöndum er almennt þessa dagana, það er ótrúlegasta vitleysa réttlætt með því að einhverjir valdamenn hafi lýðræðislegt umboð til að gera hræðilega hluti. Það er engin afsökun. En það sem ég er að reyna að koma að er að þegar nasistar fóru að ofsækja gyðinga í sífellt meira mæli — það er annað sem gleymist við þá sögu, það er ekki eins og útrýmingarbúðirnar hafi bara opnað stundvíslega 1933 þegar Hitler komst til valda, þetta tók svolítinn tíma; helförin er sögð hafa byrjað árið 1941, ef ég man rétt, sem er að loknum tveimur árum af heimsstyrjöld og eftir þó nokkuð lengri valdasetu nasista — voru mjög margir gyðingar í Þýskalandi sem höfðu skipt um nafn, tekið upp nöfn sem þóttu þýskari til þess beinlínis að forðast ofsóknir, fordóma og mismunun í samfélaginu. En það var til skrá yfir trúarbrögð fólks. Það var þannig sem nasistar fundu gyðinga sem höfðu reynt að fela sig með nafnbreytingu, settu þessa gyðinga í útrýmingarbúðir og drápu þá í milljónavís. Þetta hljómar nú kannski eins og svokallað tilfinningaklám en eins og ég segi, þetta gerðist í alvörunni. Þetta er ekki draugasaga. Þetta gerðist í alvörunni. Það er ekkert rosalega langt síðan.

Núna er uppgangur afla sem finnst kannski helförin ekki alveg í lagi en eru til í alveg þokkalega mikla mismunun. Þá er ég ekki að tala um einhverja sem eru algerlega á ystu nöf í stjórnmálum í Vesturheimi. Það er frægt að t.d. forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, lofaði því beinlínis í kosningabaráttunni að stöðva allan innflutning á múslimum til Bandaríkjanna. Það eru Bandaríkin sem hafa trúfrelsi í fyrsta viðauka stjórnarskrár sinnar. Maðurinn sigrar forsetakosningar. Þetta er bara staðan sem við erum í á Vesturlöndum. Það er þokkalega mikil eftirspurn eftir svona sjónarmiðum. Hrottar eins og Donald Trump hafa völd vegna þess að þeir eru kosnir; reyndar í meingölluðu kosningakerfi vestan hafs, reyndar gölluðu á marga vegu, en samt er hann kosinn eftir kerfi sem þykir í öllum meginatriðum lýðræðislegt. Það er ekkert óhugsandi að einhver svona öfl nái völdum hér á Íslandi. Við höfum verið blessunarlega laus við þau, alla vega í meiri hluta. Það hefur komið einu sinni fyrir, tiltölulega nýlega, reyndar, að einn hv. þm. Sjálfstæðisflokksins stakk upp á því að rannsaka sérstaklega múslima fyrir það að vera múslimar og það varð eðlilega mikið fjaðrafok. Ég vil bara nefna í leiðinni að mín samtöl við aðra Sjálfstæðismenn gáfu mjög sterklega til kynna að þessi sjónarmið væru ekki velkomin í þeim flokki, sem er mjög mikilvægt og gott. En það eru til svona öfl hérna og þau geta alveg náð völdum, bæði í gegnum flokka sem núna eru til og nýja flokka. Flokkar geta breyst eins og við vitum.

Nóg um það. Það sem ég er að reyna að koma að er að minni hlutinn telur að skráning á þessum trú- og lífsskoðunarfélögum sé ekki nógu mikilvæg til að halda henni. Hann leggur til að henni verið hætt. Það þarf aðeins að ræða hvers vegna þetta er skráð hérna á Íslandi. Þetta er ekki skráð vegna þess að það þjóni svakalega ríkum almannahagsmunum. Þetta er skráð vegna þess að á Íslandi erum við þrátt fyrir allt árið 2019 enn þá með svokallaða þjóðkirkju, sem er fráleitt hugtak ef út í það er farið. En við erum alla vega með hana og eitt af því sem þjóðkirkjan þarf, í ljósi þess að hún er þjóðkirkja, eru peningar. Hún þarf að fá peninga frá skattgreiðendum. Merkilegt, finnst mér, hversu margir svokallaðir hægri menn á Íslandi gagnrýna ekki það fráleita fyrirkomulag. Þessi skattur er kallaður sóknargjöld til þess að fela hans rétta eðli, sem er að hann er skattur, og til þess að sóknargjöldin geti farið til annarra trú- og lífsskoðunarfélaga líka þarf auðvitað að skrá það í þjóðskrá hver sé skráður í hvaða félag til að ríkið viti hvernig eigi að fjármagna þessi trú- og lífsskoðunarfélög með skattpeningum.

Virðulegi forseti. Þetta er ekki mikilvægt hlutverk ríkisins. Þetta eru ekki ríkir almannahagsmunir. Þessi félög geta alveg rukkað sín eigin félagsgjöld. Ég stend hér sem fyrrverandi stjórnarmeðlimur í lífsskoðunarfélagi sem fær þessa peninga — en hefur reyndar þá stefnu að afnema það fyrirkomulag. Að halda í þetta fyrirkomulag, sem er einhver pólitískur vilji fyrir af mjög ómálefnalegum ástæðum að mínu mati og raunar sögulegum ástæðum þegar allt kemur til alls, er bara ekki nógu góð ástæða til að halda utan um viðkvæmar upplýsingar eins og skráningu í trúfélög.

Í nefndaráliti minni hlutans er einnig farið örstutt yfir gjaldtöku en umsagnaraðilar gagnrýndu nokkuð gjaldtöku vegna notkunar gagna úr þjóðskrá, sér í lagi þegar þeir aðilar sinna sínu lögbundna hlutverki. Minni hlutinn tekur undir þetta og telur sérstaklega mikilvægt að sveitarfélög og opinberar stofnanir hafi gjaldfrjálsan aðgang að þessum gögnum til að rækja sitt lögbundna hlutverk. Ef það þykir of mikil upplýsingasókn þarf bara að endurskoða lögbundna hlutverkið. Það er áformað að setja á fót vinnuhóp til að greina það sem kallað er samfélagslegur ávinningur af því að gera upplýsingar úr þjóðskrá og grunnskrám gjaldfrjálsar og þess vegna leggur minni hlutinn ekki til breytingartillögur en meiri hlutinn er með breytingartillögur vegna gjaldtöku sem minni hlutinn styður.

Síðan komum við að 20. gr. frumvarpsins en þar er að finna afskaplega áhugavert ákvæði. Það er áhugavert fyrir þær sakir hvað það er skrýtið, illa rökstudd, eins og reyndar ýmislegt í lögum. Þar er kveðið á um það stórfurðulega fyrirkomulag að Tryggingastofnun ríkisins skuli standa straum af einum tíunda hluta af rekstrarkostnaði þjóðskrár. Það er eiginlega hlægilegt að reyna að átta sig á því hvernig þetta sé til komið, hvers vegna TR eigi að borga fyrir rekstur þjóðskrár. Það er hægt að rekja þetta í gögnum þingsins og finna rökstuðninginn: Það þótti heppilegt á sínum tíma. Meiri er rökstuðningurinn ekki.

Minni hlutinn leggur til að þessu undarlega fyrirkomulagi verði bara hætt. Þegar þetta hefur komið til tals, það hefur áður gerst, skilst mér að fólki hafi fundist eitthvað flókið að laga þetta þannig að rekstur þjóðskrár sé á fjárlögum en ekki að tíunda hluta frá TR. Það hefur manni skilist að fólki finnist flókið. Að við þurfum að skoða betur hvernig eigi að útfæra það. Minni hlutinn sér ekki alveg hvað er flókið við þetta. Það er tvennt sem þarf að gera: Laga þessi lög og breyta viðeigandi fjárhæðum í fjárlögum. Ég sé ekki að það sé flókið, það fer væntanlega tíundi hluti af rekstrarkostnaði þjóðskrár af Tryggingastofnun ríkisins til Þjóðskrár Íslands. Ég sé ekki að það sé flóknara en ég er heldur ekki í fjárlaganefnd. Ég verð að viðurkenna að fjárlögin eru með þeim málum sem mér hefur þótt hvað erfiðast að eiga við þegar kemur að tæknilegum útfærslum á fé milli stofnana og þess háttar. En í öllu falli legg ég það vandamál í hendurnar á mínum góða kollega hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni, fulltrúa Pírata í fjárlaganefnd. Það sem snýr að minni nefnd, allsherjar- og menntamálanefnd, og þessu frumvarpi er einfaldlega 20. gr. og 1. mgr. 21. gr. og ég legg til að þetta verði einfaldlega fjarlægt.

Þá gefst einnig tækifæri til þess að nefna annað sem plagar ríkið og er að mínu mati mjög hvimleitt. Það snýr að hugbúnaðargerð. Það er orðið, held ég, næstum því frægt hvað það hefur reynst erfitt að gera breytingar á þjóðskrá hvað varðar t.d. kyn og nöfn og þess háttar af tæknilegum ástæðum, af hugbúnaðartæknilegum ástæðum. Það að uppfæra hugbúnaðarkerfi og ferla í kringum þau hefur þótt svo dýrt og viðamikið verkefni að það hefur staðið í vegi fyrir vilja löggjafans til að auka t.d. frelsi við skráningu á mannanöfnum og kynjum og þess háttar. Kollegar mínir úr hugbúnaðarbransanum eiga auðvelt með að gera lítið úr þessu vandamáli og sjá fyrir sér eina SQL-skipun til að uppfæra einhverja töflu og þá sé málið dautt en það er víst ekki alveg svo einfalt. Skráningin er ekki bara til staðar hjá þjóðskrá. Það er ekki endilega nýjasta tækni og vísindi sem eru notuð og það geta verið gömul kerfi sem eru notuð hjá hinu opinbera og eru það oft. En það eru einnig staðlar og ferlar og aðrir aðilar í samfélaginu sem nota þessi gögn sem þurfa líka að geta notað þau áfram þannig að t.d. ef það er heimilað nýtt stafasett eða eitthvað því um líkt þurfa viðtakendur og notendur þjóðskrár einnig að geta tekist á við þær tæknilegu breytingar. Þetta er aðeins flóknara en einföld SQL-skipun til að uppfæra töflu í sætum, opnum gagnagrunni. En í öllu falli var það ekki það sem ég ætlaði að fara að röfla um heldur miklu frekar þann ósið sem tíðkast hjá opinberum stofnunum sem kaupa sér sérsmíðaðan hugbúnað.

Opinberar stofnanir kaupa sérsmíði. Þær hafa einhverjar sérþarfir eins og t.d. Þjóðskrá Íslands, dæmigert að hún hafi sérþarfir hvað varðar hugbúnaðartækni. Fjármálaráðuneytið líka, Ríkiskaup, fullt af stofnunum kaupa sérsmíðaðan hugbúnað af einhverjum hugbúnaðarframleiðanda, eflaust fínum hugbúnaðarframleiðanda. En hann á hugbúnaðinn. Þetta er algert mein að mínu mati þegar kemur að hugbúnaðarþróun og uppfærslum, sér í lagi á viðamiklum kerfum. Ríkið hefur bara þennan eina aðila að eiga við þegar kemur að því að uppfæra nokkurn skapaðan hlut. Þá er það háð tíma þess aðila og gjaldskrá og engin samkeppni er möguleg nema með því að byrja verkefnið algjörlega frá grunni. Orri er risavaxið kerfi, að mér skilst, sem meðhöndlar ríkisfjármálin. Það er dæmi um þetta. Ríkið á ekki þetta kerfi. Það er búið að fjármagna alla þróunina á því en á ekki kerfið. Það þýðir að það er enginn aðili sem getur breytt því kerfi eða gert neitt við það nema sá sem seldi ríkinu þá vinnu og það kerfi, þrátt fyrir að ríkið hafi fjármagnað alla hugbúnaðarþróunina. Þetta gerir að verkum að kerfi festast hjá tilteknum framleiðendum og alveg sama hversu góðir þeir framleiðendur kunna að vera — ég er ekki að gera lítið úr fagmennsku eða gæðastöðlum þeirra framleiðenda sem búa til hugbúnað, það er ekki málið. Málið er að ef við ætlum að hafa samkeppni, ef við sem ríkið, sem yfirvöld, ætlum að heimila samkeppni í hugbúnaðargerð, sérstaklega kostnaðarsamari hugbúnaðargerð, þá verður ríkið að eiga hugbúnaðinn sjálft til þess að geta valið á milli annarra hugbúnaðarhúsa, hugbúnaðarframleiðenda. Þetta er bara lykilatriði.

Mér skildist á umræðum í nefndinni að þetta væri tilfellið með uppfærslu á kerfum þjóðskrár sem er gríðarlega mikilvægt. Það var gestur hjá okkur úr ráðuneytinu sem var blessunarlega sammála þeim sem hér stendur um mikilvægi þess að þetta væri á hreinu og fór að skoða þetta og tjáði okkur að þetta væri í lagi. Minni hlutinn hlýtur að taka það bara gott og gilt.

Það er annað líka sem mig langar aðeins að kvarta undan eða minnast á, alla vega, og það er það sem kemur næst, sem er að hugbúnaður sem er sérsmíðaður fyrir ríkið á að vera opinn. Opinn hugbúnaður er hugtak sem mörgum finnst kannski flókið. Svo er ekki. Fólk skilur alveg hvað opinn fundur er og hvað lokaður fundur er. Það skilur alveg hvað opið bókhald er, öfugt við lokað bókhald. Opinn hugbúnaður er bara opinn hugbúnaður, hugbúnaður sem allir geta séð hvernig virkar og fiktað í ef þeir vilja, alla vega samkvæmt flestum opnum leyfum. Þetta er ekki það sama og að hafa opin gögn. Hugbúnaður sem sér um umsýslu gagnagrunns getur verið opinn, gagnagrunnurinn sjálfur sem hugbúnaður getur verið opinn, en gögnin sem eru geymd í þessum hugbúnaði þurfa ekki að vera opin. Þau geta verið alveg lokuð. Rétt eins og með bíl. Maður getur vitað allt um það hvernig bíllinn virkar en þarf ekki að vita allt um farþega bílsins. Það má setja hvaða farþega sem er í bílinn og deilt því með engum en samt upplýst alla um hvernig bíllinn virkar, hversu hratt hann kemst, hvernig eigi að laga hann, hvað geti bilað í honum o.s.frv. Það er eins með hugbúnaðinn. Þegar hann er opinn getur hver sem er skoðað kóðann og lagfært hann, eða í það minnsta stungið upp á breytingum, og sá sem á hugbúnað sem er opinn getur auðveldlega farið í útboð og bara sett kóðann á netið og sagt: Hérna eru kóðinn, okkur vantar þetta og hitt: Hversu góðan díl getið þið boðið fyrir að vinna þetta verkefni? Þá bjóða hugbúnaðarframleiðendur í það verk og hvernig þeir leysa það verk af hendi getur líka verið opið.

Það er ekkert þessu til fyrirstöðu og þetta er á engan hátt hættulegt þegar kemur að persónuvernd eða öryggi, sem er annað sem fólk hefur oft miklar áhyggjur af. Ég segi þetta reyndar með þeim fyrirvara að það getur verið óráðlegt að taka hugbúnað sem er búið að þróa mjög mikið og mjög lengi í lokuðu umhverfi án þess að kóðinn sé aðgengilegur neinum og opna hann síðan bara án þess að fara yfir hann alla vega fyrst. Ástæðan er sú — og nú þarf ég aðeins að móðga kollega mína en svona virkar fólk bara — að þegar forritarar gera ráð fyrir því að enginn sjái kóðann er styttra í að þeir sætti sig við öryggisfyrirkomulag sem þeir myndu annars ekki sætta sig við. Með öðrum orðum: Þeir gera ráð fyrir því að öryggið felist í því að enginn sjái kóðann. Það er vond praktík, það eru vond vinnubrögð, en það gerist samt í raunveruleikanum og það þarf að passa slíkt þegar kóði er tekinn sem þegar er lokaður og hann opnaður. En að vinna verkefnið þannig að það sé opið frá upphafi á ekki að fela í sér nein öryggisvandamál umfram það sem fylgir því þegar gerður er lokaður hugbúnaður.

Eins og ég tók fram í upphafi styður minni hlutinn þrátt fyrir allt hins vegar bæði frumvarpið og breytingartillögur meiri hlutans. Þetta frumvarp er einkenni þess hvað Íslendingar hafa verið hömlulausir í söfnun persónuupplýsinga, jafnvel viðkvæmra, og dreifingu þeirra. Ef við byggjum í samfélagi þar sem væri ekki notuð þjóðskrá og vandamál hefðu verið leyst hingað til með einhverjum öðrum hætti myndi ég ekki styðja þetta frumvarp. — Ég þakka hv. þingmanni fer að líta við hingað í þingsal, það er ágætt að hafa einn og einn áheyranda af og til.

Staðan er eins og hún er, við notum kennitölur alveg villt og galið. Ég fæ ekki alveg séð hvernig íslenskt samfélag myndi ganga upp ef við breyttum því á einni nóttu. En vissulega er þetta frumvarp skref í rétta átt, sér í lagi hvað varðar dreifingu gagnanna og rétt hins skráða til að vera upplýstur um hvernig er farið með gögnin.

Það er eitt enn í greinargerð sem mig langar að fjalla aðeins um sem mér finnst áhugavert. Það er fyrirhugað í framtíðinni að koma upp því sem heitir vefkall. Ég ætla að sleppa tæknilegum útskýringum á því en það er tækniútfærsla sem auðveldar þjóðskrá að halda utan um hver fletti upp. Það þýðir að það er auðveldara fyrir hinn skráða að finna út úr því hver sé að fletta honum upp og hvers vegna. Sem dæmi: Ef stjórnmálaflokkur flettir upp einstaklingi í þjóðskrá til þess að finna t.d. út í hvaða kjördæmi viðkomandi býr til að tryggja rétta skráningu í kjördæmafélag myndi hinn skráði fá að vita af því. Þetta er framtíðarmúsík sem því miður er ekki alveg orðin að raunveruleika en hún er jákvæð og mér finnst gott að sjá að viðleitni yfirvalda í þessum málaflokki er almennt til hins betra, sem er ekki sjálfsagt, jafnvel í svokölluðu frjálsu lýðræðisríki eins og Íslandi, sem er vissulega frjálst miðað við Sovétríkin en ekki er miðað við villtustu drauma þess sem hér stendur.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, virðulegi forseti. Nefndarálitinu fylgja fimm tölusettar breytingartillögur sem eru útlistaðar í lok þess. Undir nefndarálitið skrifar sá sem hér stendur og engir fleiri. Ég vona þó að fleiri ýti á græna takkann í atkvæðagreiðslu. Við sjáum til. Eins og maður segir stundum: Aldrei að segja aldrei.