sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.
Herra forseti. Það gleður mig að við hv. þingmaður séum sammála um mikilvægi þess að lækka þennan skatt hratt. Vandinn hefur verið og munurinn á stöðu okkar er að annar okkar er í ríkisstjórn og hinn ekki. Þarna er afleiðing af útgjaldaþenslu ríkissjóðs á undanförnum árum. Það er ekki svigrúm til að lækka skatta og því miður er það svo að áform ríkisstjórnarinnar um lækkun á þessum tiltekna skatti er það sem segja mætti of lítið og of seint. Það væri kærkomið súrefni inn í atvinnulífið og líka gagnvart heimilunum í landinu ef gengið yrði hratt og örugglega í að lækka þennan skatt. Hann var sértækur á sínum tíma, hann átti að vera tímabundinn til að fjármagna tiltekin verkefni sem er löngu lokið, afleiðingar hrunsins. Enn sitjum við eftir með þessa tímabundnu skattheimtu, enda þekkjum við mætavel að tímabundnir skattar hafa tilhneigingu til að lifa mjög lengi.
Ég ætla ekki að rífast mjög lengi við þingmanninn um mál sem við erum í grunninn sammála um en hvet hann engu að síður til dáða, hvet hann til að fylgja því eftir að hér sé gengið ákveðnar til verks. Það er því miður í umræðu um skatta sem þessa, og þessi umræða hefur líka verið um virðisaukaskatt, að ekki sé hægt að lækka þessi gjöld af því að þau skili sér ekki til neytenda. Samt hafa allar rannsóknir sýnt hið gagnstæða. Hér hefur ítrekað verið bent á að þessi tiltekni skattur leggst með beinum hætti á vaxtaálögur almennings og fyrirtækja í landinu, dregur þar með úr nauðsynlegri fjárfestingu, dregur úr virði á eignarhlut ríkisins í bönkunum, eins og skýrt hefur verið bent á, og mætti í raun og veru segja að ríkið sé að stórskaða eigin afkomu með þessari tilteknu skattlagningu. Bæði mætti segja að afleiðingar af því að lækka þennan skatt verulega myndu fela í sér örvun á fjárfestingarstigi í landinu og þar með tekjum ríkissjóðs (Forseti hringir.) og um leið er þessi skattur að virða eignir ríkisins sem eru þessir sömu bankar.