150. löggjafarþing — 38. fundur, 2. des. 2019.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Miðflokksins um að 4. þm. Norðvest., Bergþór Ólason, verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Miðflokksins í kjördæminu, Jón Þór Þorvaldsson.
Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.