150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

fundur utanríkisráðherra Íslands og Rússlands.

[15:08]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Þar sem þetta snýr kannski að tvískinnungnum er það ákvörðun Rússa að setja þetta viðskiptabann á og það kemur illa niður á okkur en vestræn ríki halda áfram viðskiptum við Rússa og við höfum gert það líka. Af því að hv. þingmaður spyr hvort eitthvað sé að birta til má segja að það hafi gengið. Við höfum lagt mikla áherslu á að styðja við íslenskan útflutning í utanríkisþjónustunni og munum halda því áfram, m.a. með breytingu á lögum um Íslandsstofu. Það má segja að þarna hafi verið að birta til. Útflutningur okkar til Rússlands hefur verið að aukast og viðskiptin að glæðast og það m.a. á þeim sviðum þar sem okkar helstu sóknarfæri eru, á sviði hátækni. Sömuleiðis hafa íslenskir aðilar fjárfest í Rússlandi, t.d. í skyrverksmiðju, og þó að það sé ekki útflutningur frá Íslandi til Rússlands er ánægjulegt að við séum að selja skyrið okkar sem er gæðafæða.

Þarna var stór sendinefnd. Við erum búin að stofna, eins og ég nefndi, Rússnesk-íslenska viðskiptaráðið, fulltrúar 20 fyrirtækja. (Forseti hringir.) Það verður spennandi að fylgjast með því bæði í nútíð og framtíð hvernig þeim muni vegna á þessum stóra og mikilvæga markaði.