150. löggjafarþing — 38. fundur, 2. des. 2019.
tímasetning næstu alþingiskosninga.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Samkvæmt lögum okkar um stjórnskipan lýkur kjörtímabilinu í lok október 2021. Það stendur í fjögur ár frá kjördegi þannig að í sjálfu sér lægi það beinast við en það sem ég hafði ætlað mér að gera, því að ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um að halda kosningar fyrr, var að óska eftir fundi formanna allra flokka fyrir næsta þingvetur til þess að ræða tímasetningu kosninga.