150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

tímasetning næstu alþingiskosninga.

[15:25]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en mér þykja þetta samt sem áður heldur rýr svör. Við vitum að til stendur að breyta kosningalögum. Við viljum hafa mjög góðan fyrirvara á því og ég held að það skipti okkur töluvert miklu máli, bæði almenning en líka okkur sem sitjum á þingi, að vita hversu langur tími er til kosninga og þá eftir atvikum líka hversu stuttan tíma við höfum þannig séð til að breyta lögum um kosningar. Eins og við vitum hefur okkur verið ráðlagt af alþjóðastofnunum að gera það með mjög góðum fyrirvara fyrir kosningar. Mér þykir samtal næsta haust um það hvort kosningum verði hugsanlega flýtt vera heldur seint í rassinn gripið ef ég ætti bara að lýsa minni eigin skoðun á því og þó að hæstv. forsætisráðherra finnist liggja beinast við að vera fram í október 2021 finnst mér það gagnvart fjármálum ríkisins, fjárlagagerð og öllu því sem þarf að huga að þegar ný ríkisstjórn er mynduð (Forseti hringir.) frekar hallærisleg pæling. Það borgar sig ekkert fyrir okkur að hafa þetta svona.