ráðningarfyrirkomulag hjá RÚV.
Virðulegur forseti. Það er þannig að ráðherrann er að óska eftir upplýsingum og rökstuðningi stjórnarinnar vegna þess að bent hefur verið á að þarna sé mögulega einhver lagaleg óvissa. Mér finnst bara gríðarlega brýnt að þetta liggi allt fyrir, sér í lagi vegna þess að umsóknarfresturinn er að renna út. Mér finnst það eðlileg umsýsla að fá þær upplýsingar og rökstuðning og mér finnst ég vera að sinna hlutverki mínu. Ég vil líka nefna það við hv. þingmann að ég hef þá skoðun að brýnt sé að það sé gagnsæi í öllu því sem stjórnvöld gera. Ég þarf að hafa skoðanir til að vera í stjórnmálum og þetta er skoðun mín. En mér finnst líka mjög brýnt að stjórn RÚV fari yfir það og skýri nákvæmlega út hvort það sé mögulega einhver lagaleg óvissa eður ei.