desemberuppbót lífeyrisþega.
Virðulegur forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma á fimmtudaginn var ég með spurningar til hæstv. félags- og barnamálaráðherra um jólabónus. Ég spurði hann hvað í ósköpunum ákveðinn hópur hefði gert af sér til að eiga skilið að fá jólabónusinn skertan, hvers vegna verið væri að refsa þeim hópi. Hann gat ekki svarað því þannig að ég svaraði fyrir hann sjálfur og benti á að það eina sem þetta fólk hefði gert af sér væri að borga í lögþvingaðan eignaupptökuvarinn lífeyrissjóð. Jólabónus viðkomandi er skertur fyrir það eitt að hann fari að lögum og borgi í lífeyrissjóð.
Ég hitti einn í gær sem fékk rosalegan jólabónus, 1% af jólabónusi þingmanna, rétt 1.800 kr. Öryrki fékk 1.800 kr. í jólabónus og ég spyr: Er það eðlilegt? Það sem hæstv. félags- og barnamálaráðherra sagði og ítrekaði var að þetta hefði alltaf verið svona og ætti þess vegna alltaf að vera svona, að það væri bara eðlilegt. Er ekkert í stjórnarskránni um að allir eigi að vera jafnir? Er það ekki brot á jafnræðisreglu að taka einn hóp út úr, eingöngu fyrir að borga í lífeyrissjóð, og segja við hann: Heyrðu, þið fáið ekki fullan jólabónus?
Við skulum átta okkur á því að við erum ekki að tala um háar upphæðir, við erum að tala um 181.000 hjá okkur, 80.000 hjá atvinnulausum en 44.564 kr. nákvæmlega hjá öryrkjum — og þeir geta ekki allir fengið það óskert. Það er óeðlilegt.