desemberuppbót lífeyrisþega.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina sem ég hlýddi á svör hæstv. félags- og barnamálaráðherra við. Þetta heyrir undir hans málasvið. Eins og ég skil hv. þingmann er hann hér í raun og veru að óska eftir því að horft verði heildstætt yfir desemberuppbætur, ef við getum kallað það svo, allra þeirra hópa sem heyra undir ríkið. Þar getum við nefnt örorkulífeyrisþega, aldraða, atvinnuleitendur — þetta er ekki með einum hætti — og hælisleitendur sem ekki hafa fengið desemberuppbætur vegna laga og reglna en hafa fengið desemberuppbót vegna sérstakra ákvarðana, fyrst hjá ákveðnum sveitarfélögum og síðar vegna ákvarðana ríkisstjórnar. Ég skil hv. þingmann þannig að hann sé fyrst og fremst að hvetja til þess að þetta verði samræmt af hálfu hins opinbera þegar kemur að atvinnuleitendum, öryrkjum og öldruðum.
Ég átta mig á því að þetta er afgreitt hlutfallslega, til að mynda hjá örorkulífeyrisþegum. Ég skildi hv. þingmann sem svo í fyrirspurn hans þótt það kæmi ekki alveg skýrt fram núna en a.m.k. í þeirri fyrirspurn sem hann flutti hér á fimmtudaginn ræddi hann sérstaklega um örorkulífeyrisþega. Þar hefur þessi desemberuppbót verið afgreidd með hlutfallslegum hætti. Við getum reifað það hvernig við viljum sjá þessu hagað og ég get tekið undir þau sjónarmið sem hv. þingmaður setur hér fram, að kannski sé ástæða til að samræma þetta betur milli ólíkra hópa því að núna er sannarlega ekki samræmi í þessu.