150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

desemberuppbót lífeyrisþega.

[15:41]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil í þessu samhengi minna á nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar sem lagt var fram samhliða afgreiðslu fjárlaga þar sem boðað er að við afgreiðslu fjáraukalagafrumvarps verði einmitt, eins og hv. þingmaður nefndi, gert ráð fyrir 10.000 kr. desemberuppbót til örorkulífeyrisþega. Þar er sérstaklega horft til þess að sá hópur stendur veikt þegar við horfum á heildartekjuþróun síðustu ára. Hæstv. félags- og barnamálaráðherra þarf að bregðast við því með því að setja sérstakar reglur um desemberuppbót. Ég vil minna á að meiri hluti fjárlaganefndar hefur boðað að þessi breyting verði lögð til við fjáraukalagafrumvarp sem ég vonast til að verði afgreitt á næstu dögum í þinginu þó að mér sé ekki nákvæmlega kunnugt um það hvenær fjárlaganefnd ljúki vinnu sinni við það.