úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Herra forseti. Ég kem hingað upp eiginlega til að kalla eftir nánari útskýringum á orðum hæstv. forseta í tengslum við óundirbúna fyrirspurn hv. þm. Þorsteins Víglundssonar. Ég bað um leyfi til að skipta um fyrirspurn og ráðherra í ljósi svars við fyrri fyrirspurn til hæstv. menntamálaráðherra. Það er síðan alveg spurning hvort tilefni sé til þriðju tilraunar til að fá úr því skorið hvort ráðherra ætli sér að fá rökstuðning eða fara yfir málið lagalega. Það er önnur saga, við fáum svör við því á öðrum vettvangi, en ég verð að segja að ég átta mig ekki á því hvað það var nákvæmlega í orðum hv. þingmanns sem gerði það að verkum að hæstv. forseti brást við með þessum hætti. Ég óska eftir útskýringu á því vegna þess að samkvæmt minni bestu vitneskju og samkvæmt orðanna hljóðan er ekkert að þessu fyrirkomulagi.