úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Herra forseti. Ég verð að sama skapi að furða mig á þessum úrskurði virðulegs forseta. Ég sé ekki betur en að hér sé einfaldlega vegið að frelsi okkar þingmanna til óundirbúinna fyrirspurna til hæstv. ráðherra. Ég óskaði eftir því að beina þessari fyrirspurn til hæstv. ráðherra einfaldlega af því að mér fannst af fyrra svari margt benda til þess að verið væri að grípa fram fyrir hendur á stjórn RÚV og taldi fulla ástæðu til að spyrja hæstv. ráðherra út í það. Ég taldi þar af leiðandi og tel spurninguna allt annars eðlis en spurningu hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar sem hafði vissulega spurt ráðherra út í sama efni fyrr. Ég furða mig á því að það sé á valdi hæstv. forseta Alþingis að ráða því að hverju þingmenn minni hlutans spyrja hæstv. ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma — svo að það sé endurtekið: óundirbúnum.