150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.

[15:47]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég vildi koma því að í þessari umræðu að ummæli þingskapa um óundirbúnar fyrirspurnir eru frekar fáorð þannig að það verður að láta forseta eftir nokkurt svigrúm til að meta hvernig hann framkvæmir þetta. Framkvæmdin hefur breyst nokkuð í gegnum tíðina. Þegar ég var að hefja störf var þetta mjög mikið í þeim farvegi að þetta voru formenn stjórnarandstöðuflokka að spyrja forsætisráðherra og aðra oddvita ríkisstjórnarflokka. Svo þróaðist þetta með einhverjum hætti þannig að það komst á, án nokkurs ákvæðis í þingsköpum heldur bara fyrir samkomulag, það fyrirkomulag að það var einhver skipting milli flokka, dreifing milli flokka, byggð á samkomulagi. En ég segi: Forseti þarf í þessu tilviki eins og mörgum öðrum að beita dómgreind sinni til að komast að niðurstöðu um álitamál og ég held að forseti hafi gert það af góðum hug í þessu máli.