úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Forseti. Ég tek undir beiðni um að forseti endurskoði þennan úrskurð sinn. Ég get einnig tekið undir að það sé eðlilegt að dagskrárliður eins og óundirbúnar fyrirspurnir þróist með tímanum en ég held að lykilatriðið hérna og lykilorðin séu samráð og samtal, að við komum að því saman að taka ákvörðun um hvernig við viljum hafa þennan lið, óundirbúnar fyrirspurnir, en að forseti taki ekki bara ákvörðun af handahófi ef honum líkar ekki við spurningarnar sem eru bornar upp og stoppi stjórnarandstöðuna í því að inna ráðherra eftir svörum þegar okkur dettur í hug að það vanti upp á svör. Þetta er asnalegt og það er óréttlátt að koma svona fram. Ég bið forseta um að endurskoða þetta.
Það er svipað asnalegt og ef við í stjórnarandstöðunni tækjum okkur allt í einu saman og létum forseta vita algjörlega á seinustu stundu við hvern við ætluðum að tala og um hvað eða að við ákvæðum nokkrum sekúndum áður en við förum upp í óundirbúna fyrirspurn og segðum: Heyrðu, já, við ætlum að fara í óundirbúna við þennan ráðherra.
Þurfum við að gera það þannig? Getum við ekki bara komist að samkomulagi um að við getum innt ráðherra eftir svörum ef við teljum þörf á?