úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Virðulegi forseti. Vissulega hafa óundirbúnar fyrirspurnir þróast að einhverju leyti. Fyrsta reynsla mín af þingstörfum sem varaþingmaður var einmitt að vera neitað um að fara í óundirbúna fyrirspurn, að hluta til af því að ég var einhvern veginn ekki í réttum buxum, það var eitthvað skrýtið, og í öðru lagi af því að ég var varaþingmaður og þetta var fyrsta ræðan og eitthvað svoleiðis. Það komu skrýtnar útskýringar eftir á. En í tengslum við þetta velti ég því fyrir mér hvort það sé svona sem þessar svokölluðu óskrifuðu reglur verða til af því að þetta er dálítið spes, verð ég að segja. Út af efnisinntaki fyrirspurnarinnar er allt í einu komin ný ákvörðun forseta um að það megi aldrei gera svona aftur. Ég hvet forseta til að íhuga þetta aðeins betur frekar en að taka geðþóttaákvörðun í forsetastól.